Kröftugur Klassy skilaði Viðstöðu sigri

Snorri Rafn Hallsson skrifar
klassy

Leikurinn fór fram í Ancient sem bæði lið hafa spilað ágætlega á tímabilinu. TEN5ION hafði betur í hnífalotunni og fjórföld fella Tight í skammbyssulotunni lofaði góðu fyrir liðið. Leikur Viðstöðu var tæpur í upphafi leiks. Þeim tókst ítrekað að koma sprengjunni fyrir en áttu í vandræðum með að verja hana aðgerðum TEN5ION.

Í fimmtu lotu tókst Viðstöðu loks að sprengja sprengjuna, nappa vappanum og lifa allir fimm til að koma sér á blað. Tony sem kom nýr inn í liðið í leiknum var atkvæðamikill ásamt Mozar7 og Klassy en þegar Viðstöðu var við það að jafna tók TEN5ION aftur við sér og komst í 5–3.

Það sem eftir var voru liðin nokkuð jöfn, Viðstöðu tókst að komast yfir en undir lok hálfleiksins náði TEN5ION góðri forystu.

Staða í hálfleik: TEN5ION 9 – 6 Viðstöðu

Klassy bjargaði skammbyssulotunni fyrir horn fyrir Viðstöðu með naskri fellu á Tight og bættu leikmenn Viðstöðu um betur og unnu næstu lotur án þess að missa varla mann. Staðan var þá jöfn en þreföld fella frá Capping kom TEN5ION yfir á ný.

Mozar7 var þó lipur á vappanum fyrir Viðstöðu í síðari hálfleik og þegar við bætist að Blazter var kominn í gang átti liðið auðvelt með að ná forskotinu á ný. TEN5ION náði þó að brjóta efnahag þeirra á bak aftur og minnka muninn þegar langt var liðið á hálfleikinn. TEN5ION hélt ró sinni og beið eftir færum þegar lið Viðstöðu gerði mistök. Undir lokin hafði Viðstöðu þó betur þegar Tony felldi EinarVac og aftengdi sprengjuna í 30. lotu.

Lokastaða: TEN5ION 14 – 16 Viðstöðu

TEN5ION eru því enn stigalausir á botni deildarinnar en leikjunum hafa þeir almennt tapað heldur naumt. Lið Viðstöðu gegnur þó sátt frá borði með sinn annan sigur á tímabilinu en báðir komu einmitt í Ancient.

Næstu leikir liðanna:

  • TEN5ION – Þór, fimmtudaginn 27/10, klukkan 20:30.
  • Fylkir – Viðstöðu, fimmtudaginn 27/10, klukkan 21:30.

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira