Furious frábær í Vertigo

Snorri Rafn Hallsson skrifar
furious

Liðin mættust í Vertigo eins og LAVA og SAGA fyrr um kvöldið og hafði TEN5ION betur í hnífalotunni. Hugo tryggði liðinu svo fyrstu lotu leiksins en Furious og félagar í Breiðablik voru ekki lengi að tryggja sér forskot snemma í leiknum.

Wnkr var árásargjarn og sótti framarlega á B-svæðið til að valda TEN5ION miklum vandræðum. Þannig opnaði hann vörn andstæðinganna upp á gátt og fylgdi Breiðablik því vel eftir. TEN5ION tókst að jafna undir handleiðslu Hugos en undir lok hálfleiks náði Breiðablik forskotinu aftur.

Staða í hálfleik: TEN5ION 6 – 9 Breiðablik

TEN5ION saxaði á forskotið í upphafi síðari hálfleiks. Tight og Capping tryggðu TEN5ION skammbyssulotuna og fjórföld fella Capping minnkaði muninn í einungis eitt stig.

Breiðablik svaraði því með því að fjárfesta eins og þeir gátu í vopnabúnaði. Spilastílinn minnti örlítið á FACEIT þar sem loturnar unnust á einföldum bardögum frekar en samstilltum og skipulögðum aðgerðum. 

TEN5ION fóru ekki nægilega þétt saman um kortið og gáfu allt of mörg færi á sér.Furious og félögum tókst að raða inn fellunum, rústa efnahag TEN5ION og vinna leikinn.

Lokastaða: TEN5ION 9 – 16 Breiðablik

TEN5ION sitja enn stigalausir á botni töflunnar en Breiðablik styrkti stöðu sína á miðjunni.

Næstu leikir liðanna:

  • Breiðablik – NÚ, laugardaginn 15/10, klukkan 17:00.
  • TEN5ION – Viðstöðu, laugardaginn 15/10, klukkan 18:00.

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira