Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
Blaðamaður tók púlsinn á Unni Elísabetu Gunnarsdóttir, leikstjóra sýningarinnar og sviðshöfundi, og Önnulísu, lagahöfundi, tónlistarstjóra sýningarinnar og sviðshöfundi en þær hafa saman unnið að sýningunni Nýr heimur.
Hvaðan kemur innblásturinn fyrir þessu tónlistaramyndbandi?
Unnur Elísabet: Þetta lag er titillag sýningarinnar Nýr heimur og innblásturinn sprettur þaðan. Lagið fjallar um lífið og hvort það hljóti ekki að vera æðri tilgangur með öllu ruglinu sem við göngum í gegnum. Mér fannst ekkert annað koma til greina en að staðsetja okkur í einni allsherjar afmælisveislu þar sem enginn veit hver á afmæli. Eins og allir vita þá eru afmæli partý þar sem lífinu er fagnað og oft eru þau stór tímamót hjá fólki, þar sem það fer í gegnum árið, óskar sér og pælir og hugsar hvað hefði mátt fara betur eða hvað stóð upp úr.
En á sama tíma og einhver fæðist eða á afmæli þá deyr annar einhvers staðar í heiminum og stutt á milli fagnaðar og sorgar.
Annalísa: Innblásturinn fyrir lagið sjálft kom frá pælingum okkar um lífshlaupið, tilgang lífsins og hvernig maður ver þessu lífi. Ég er mjög innblásinn af fáránleika mannlegrar tilvistar og tilvistarstefnunni í svona pælingum með líf og dauða; tilgangur lífsins er lífið og allt það. Og svo vorum við líka að vinna svolítið með örvæntingu; örvæntinguna sem fylgir öllu tali um tilgang lífsins, sem við tengjum örugglega öll við á einhverjum skala:
Það bara hlýtur að vera einhver tilgangur með því að gera allt þetta rugl. Það hlýtur að vera eitthvað stærra, eitthvað himinhvolfinu hærra, því allt þetta rugl - varla er þetta rugl til einskis?
Hvernig hefur ferlið við gerð lagsins og myndbandsins gengið?
Unnur Elísabet: Samstarf okkar Önnulísu hefur verið alveg frábært og þetta er sennilega ekki það síðasta sem þið sjáið af okkur saman. Mér líður eins og við höfum þekkst til fjölda ára, séum búnar til úr sama húmor og tengjumst mjög vel listrænt séð. Textinn og lagið flæddi til okkar.
Í sýningunni Nýr heimur þá mæti ég sjö listamönnum í tíu mínútna örverkum og þetta lag er okkar dúett. Annalísa tekur síðan þátt í allri sýningunni sem tónlistarstjóri og mun hún birtast í alls konar skemmtilegum senum, til dæmis sem engill.
Annalísa: Það hefur gengið mjög vel.
Þetta er náttúrulega búinn að vera knappur tími til þess að semja lag, pródúsera, mixa og gefa út en þetta er góð æfing í að sleppa takinu og bara hafa gaman að þessu, ekki ofhugsa.
Svo er náttúrulega fáránlega gott og gaman að vinna með henni Unni.
Hvernig hefur Ég býð mig fram ævintýri ykkar verið og við hverju mega sýningargestir búast í þessari fjórðu seríu?
Unnur Elísabet: Sería fjögur er svo sannarlega Nýr heimur með nýjum samstörfum með frábærum listamönnum. Ég mæti listamönnunum í mjög fjölbreyttum örverkum sem öll hafa það sameiginlegt að fjalla um nýja heima hvort sem þeir eru á persónulegum, hnattrænum eða fjarrænum skala.
Fólk má búast við veislu, fjölbreytileika, húmor, gleði, ljúfsárum og sönnum senun sem auðvelt er að tengja við. Verkin eru eins ólík og þau eru mörg en fjalla um ást og skilnað, meðgöngu og nýtt líf, ókannaðar slóðir (geiminn), mikilvægi tengingar/samskipta, það sem gæti gerst, óvæntan vinskap og heimsenda.
Markmiðið með laginu og sýningunni er að kveikja á nýjum heimum í kollinum á fólki og vonandi færa þeim smá meiri birtu í lífið, þó ekki nema það sé í smá stund.
Hvað ef að þeir sem horfa á vídeóið fari heim í kvöld og uppgötvi tilgang lífsins? Hvað ef lagið gæti breytt heiminum? Hvað ef við gætum elskað okkur sjálf jafn mikið og við elskum börnin okkar? Hvað ef við gengum á fjórum fótum? Hvað ef?
Annalísa: Þetta er fyrst og fremst búið að vera rosalega gaman. Sýningin samanstendur af sjö 10 mínútna örverkum eftir Unni og annað frábært hæfileikaríkt listafólk. Ég bý til tónlistina í þessum örverkum og sýningunni allri, þannig ég hef fengið að vera með í allri þessari vinnu og það er ótrúlega skemmtilegt og dýrmætt.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég bý til tónlist og hljóðmynd fyrir atvinnuleiksýningu þannig þetta er stórt og krefjandi verkefni en að sama skapi mjög spennandi og gaman að vinna með svona flottu listafólki.