Lífið

„Ég var bara að ákveða hvort ég ætlaði að lifa eða ekki“

Elísabet Hanna skrifar
Camilla Rut opnar sig um skilnaðinn, lífið eftir hann, æskuna og geðheilsuna í Helgaspjallinu.
Camilla Rut opnar sig um skilnaðinn, lífið eftir hann, æskuna og geðheilsuna í Helgaspjallinu. Skjáskot/Instagram

Athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir segist hafa þurft að hafa fyrir því að halda sér gangandi eftir röð áfalla í upphafi síðasta árs. 

Húsið selt

Camilla opnaði sig um skilnaðinn og fleira persónulegt í viðtali hjá Helga Ómarssyni í hlaðvarpinu Helgaspjallið.

„Nú er ég náttúrulega bara með börnin mín helminginn af tímanum sem er vissulega, ég var að tala um það í story um daginn, það er erfitt, það rífur í.“ 

Hún segir sig og fyrrum eiginmann sinn, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, þó enn vera góða vini og geta verið í kringum hvort annað en saman eiga þau tvo drengi. 

Hún segir það trufla sig mest að vera heimilislaus þær vikur sem hún er ekki með börnin en þau skiptast á að vera í gamla húsinu eftir því hver er með börnin. Nú er húsið selt og brátt fara þau að koma sér fyrir á sitthvoru heimilinu.

Vildu sitthvort lífið

„Við vildum bara svolítið sitthvort lífið og matchið var ekki rétt. Skilnaður kom fyrst upp á borðið fyrir fjórum árum síðan. Þá tók ég út svolítið sorgina,“ segir hún um samband sitt og fyrrverandi eiginmannsins. 

Hún segir þau hafa reynt áfram og fengið góðan tíma saman. Þau eignuðust þau sitt annað barn á því tímabili. Svo segir hún lífið hafa haldið áfram og covid skollið á ásamt allskonar áföllum. „Ég fæ taugaáfall í byrjun síðasta árs, byrjun 2021 og hann eiginlega líka. Þetta var rosa mikið mók.“

Taugaáföll

Camilla segist fyrst hafa fengið taugaáfall í október 2020 en í janúar hafi mesti skellurinn komið. 

„Þá missti ég máttinn svolítið í löppunum bara í nokkra daga.“ 

Hún segir þann tíma hafa verið erfiðan og skref aftur á bak fyrir sig. „Málið er bara að líkaminn sagði bara stopp. Ég hef tekið allt á kassann,“ segir hún en þarna hafi líkaminn fengið nóg.

Hún segir taugakerfið hafa verið búið á því og hún hafi verið að reyna að halda áfram og hafi ekki viljað gefast upp. Camilla talar um myndband sem hún tók á þessum tíma þar sem hún var grátandi upp í rúmi að reyna að sannfæra sig um að halda áfram. „Ég var bara að ákveða hvort ég ætlaði að lifa eða ekki og ég ætlaði ekki að gefast upp.“

Komin gremja á heimilið

Varðandi ákvörðunina um að skilja segir hún heimilislífið hafa verið kominn á stað sem hún vildi ekki vera á. „Það var svona mók á sínum tíma og var bara komin gremja inn í heimilislífið. Það var svolítið lamað heimilishald sem er ekki eins og mig langar að líða í mínu lífi. Ég vil lifandi líf. Ég þarf alveg minn griðarstað,“ segir hún og bætir því við að hún kjósi léttleika í sínu lífi.

„Þetta var svo friðsæl ákvörðun,“ segir hún um lokaákvörðunina um skilnaðinn og rifjar upp samræðurnar. „Það kemur upp að það er ekki vilji fyrir því að vinna meira í þessu og ég tek því bara. Það er allt í lagi og ég bara já okei og þannig var það bara,“ segir hún um samtalið.

Eftir samtalið lögðust þau upp í rúm og horfðu á mynd og segist hún hafa fundið fyrir gríðarlegum létti. „Við vorum bæði bara vó þetta var svo mikill léttir,“ bætir hún við. Hún segir ferlið þó hafa verið erfitt en þau setja börnin ávallt í fyrsta sæti. 

„Brunout“ um tvítugt

Þegar Camilla var nítján ára varð hún ólétt að sínu fyrsta barni og þegar hún var tvítug var hún greind með fæðingarþunglyndi. „Ég kemst svo að því síðar meir að það var ekki þunglyndi heldur burnout,“ segir hún og rifjar upp hvernig hún var að vinna allan sólarhringinn. „Ég andaði vinnunni að mér, lifði hana bara.“

Þegar eldri sonur hennar var eins árs fór hún til Póllands í detox hjá Jónínu Ben heitinni, en Camilla er barnabarn Gunnars í krossinum. 

„Ég fer í rassaskolun og allan pakkann, ég tek þetta all in. Ég ákvað, hérna er ég að taka tvær vikur þar sem ég ætla að lækna mig.“ Í þessari ferð ákvað hún hvernig hún vildi hafa framtíðina sína og skrifaði það niður á blað.

Ég veit bara hvernig mig langar að líða í mínu lífi og það er það sem ég eltist við allan sólarhringinn.

Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan:


Tengdar fréttir

Camilla Rut og Rafn skilja

Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Rafn Hlíðkvist Björg­vins­son hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að skilja eftir þrettán ára samband. Þau tilkynntu skilnaðinn á hugljúfan hátt, saman, á miðli Camillu.

„Finnst mjög óheillandi þegar ég er ekki dýrkuð og dáð“

„Þetta getur vissulega verið krefjandi á tímum en ég finn mig mjög vel í þessu hlutverki. Það sem skiptir mig og okkur öllu máli er að setja börnin í fyrsta sætið, passa uppá samskiptin og að öllum líði vel í breyttum aðstæðum,“ segir Camilla Rut í viðtali við Makamál. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×