Tíska og hönnun

Ágætis staðfesting að fá hrós frá Virgil Abloh

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Fatahönnuðurinn Bergur Guðnason er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Fatahönnuðurinn Bergur Guðnason er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Kei Toyoshima

Bergur Guðnason er þrítugur fatahönnuður sem hefur komið víða að í heimi tískunnar. Bergur útskrifaðist úr LHÍ árið 2017, bjó um stund í París þar sem hann starfaði fyrir tískuhús á borð við Haider Ackermann og Acne Studios og hannaði þar flíkur fyrir tískupalla sem fóru í sölu síðar meir. Hann starfar nú hjá 66 norður og er meðal annars að hanna sérstakar línur fyrir væntanlega verslun fyrirtækisins í Bretlandi. Bergur Guðna er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Klæðaburður fólks er eitt helst tjáningarform mannkynsins, alveg frá miðöldum og þangað til nú. Þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf verða þannig.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Rick Owens stígvélin mín. Einfaldlega því Rick er geitin.

Bergur að störfum í uppáhalds stígvélunum sínum frá Rick Owens.Aðsend
Stígvélin í nærmynd.Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Á venjulegum morgni heima á Íslandi tekur það mig fimm til tíu mínútur. Ég gef mér meiri tíma í að klæða dóttur mína fyrir leikskólann en að klæða mig sjálfan. Síðan þegar ég er erlendis gef ég mér lengri tíma.

Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Hann er mjög fjölbreytilegur. Litir, mikið svart og hvítt, víðar buxur, þröngar buxur, mikið Raf Simons, mikið 66. Ég gæti haldið endalaust áfram. Ég blanda oft saman designer flíkum og töskum með einhverju basic

Aðsend
Skór eru mikilvægir fyrir mér, þeir sem þekkja mig vita það. 

Ég er núna að fara labba út úr húsi í fótboltatreyju, víðum military cargo buxum, háum Jordan 1’s með Bottega Veneta tösku. 

Þetta outfit meikar ekkert sense en það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt. 

Annars var þetta er mjög erfið spurning.

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Hann breytist hvern einasta dag. Ég hef undanfarið verið að fara í gegnum gömul föt af mér síðan ég var unglingur og það er gaman að rifja upp gamalt dót og klæðast því aftur.

Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Listinn er mjög langur, ég gæti skrifað margar blaðsíður en ég var að skoða um daginn sjaldgæfar froskategundir, litina á þeim og munstur. Það gerði mikið fyrir mig og veitti mér hellings innblástur. 

Svo eru það ákveðin tímabil í tónlist, form í umhverfinu, ákveðnar persónur og ævisögur þeirra og arkitektúr. Svo veita konan mín og dóttir mín mér mikinn innblástur.

Bergur með konu sinni, Margréti Rajani, og dóttur þeirra Unni Rajani.Óli Magg

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Nei, ég geri það sem mér dettur í hug hverju sinni. Fólk talar oft um reglur, hvað má og hvað má ekki. 

Reglur eru leiðinlegar, sérstaklega þegar það kemur að því hvernig fólk tjáir sig.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Örugglega Rauður shearling jakki sem ég hannaði fyrir útskriftarsýninguna mína í Listaháskólanum.

Ég fór í honum til Parísar á tískuvikuna og var eltur af ljósmyndurum allan tíman. Einn ljósmyndarinn spurði hvort hann gæti keypt jakkann. Ég svaraði neitandi og sagði honum að mér myndi verða kalt ef ég færi úr honum.

Þennan sama dag hitti ég Virgil Abloh, hann hrósaði jakkanum og spurði út í smáatriðin í honum, efnið og fleira. Það var ágætis staðfesting á að jakkinn hefði verið vel heppnaður.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Ekki spá í hvað öðrum finnst. Annarra manna skoðanir skipta engu máli, einungis þínar.


Tengdar fréttir

„Finnst lítið spennandi að fara í jakkaföt og skyrtu“

Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason hefur starfað innan tískuheimsins í langan tíma og farðað hinar ýmsu stórstjörnur, á borð við Íslandsvinkonuna Katy Perry og Dua Lipa. Hann elskar hvað tískan er breytileg og hefur farið í gegnum ólík tímabil í klæðaburði en hallast núna að andro stíl og hefur alltaf verið hrifinn af litum og munstrum. Ísak Freyr er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Rokkstjörnustælar og bling“

Litagleði, gelluvíbrur og rokkstjörnu stælar einkenna Júlíu Grönvaldt, sem starfar sem listrænn stjórnandi og stílisti við fjölbreytt verkefni tengd tísku, menningu og listum. Hún lærði tískumiðlun í Flórens á Ítalíu en flutti heim eftir námið til að vinna sem sjálfstætt starfandi og elskar að geta notað ástríðu sína á tísku í starfi. Júlía er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Munur á því að fá innblástur og að stela hugmyndum annarra“

Diana Rós Hanh Breckmann er sjálfstætt starfandi tískustílisti sem hefur alltaf leyft sér að prófa og þróa alls konar stíla. Hún velur sér föt samkvæmt skapi og stemningu og er hrifin af austur asíska götustílnum í bland við metal fíling. Diana Rós er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Í of áberandi kjól fyrir Versali

Brynja Kúla Guðmundsdóttir er óhrædd við að fara eigin leiðir í fatavali og lýsir stíl sínum sem áberandi og litríkum. Hún segir ónauðsynlegt að takmarka sig við einhvern einn stíl og að engar reglur gildi í leik tískunnar. Brynja Kúla er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Smitandi þegar fólk er ánægt með klæðaburðinn sinn“

Elma Dís Árnadóttir finnur fyrir mikilli hamingju þegar hún klæðist litríkum og glitrandi flíkum og segir stílinn sinn hafa þróast með sér í gegnum árin. Henni finnst mikilvægast að fólk sé samkvæmt sjálfu sér í klæðaburði og elskar að sjá það klæða sig eins og þeim sjálfum finnst flott. Elma Dís er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Fyrir mig er þetta hugarleikfimi“

Ármann Reynisson er mikill lífskúnstner sem hefur bæði áhuga og þekkingu á tísku og klæðaburði og segir góða hugarleikfimi að setja saman flíkur fyrir hin ýmsu tilefni. Ármann hefur ferðast víða um heiminn og skrifað tuttugu og tvær vinjettubækur en í október næstkomandi kemur tuttugasta og önnur bókin út. Hann hefur gaman að því að klæða sig upp fyrir hin ýmsu tilefni, er alltaf snyrtilegur til fara og samkvæmur sjálfum sér. Hann bjó um tíma í London þar sem hann lagði stund á viðskiptanám og segir menningarlíf borgarinnar ekki hafa verið síðri lærdóm. Ármann Reynisson bauð blaðamanni í kaffi og veitti innsýn í fataskáp sinn sem býr yfir fataúrvali sem spannar um fjörutíu ár. Hann er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×