Innlent

Samdi ljóð og sendi til MAST vegna dýraníðs á næsta bæ

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Guðrún er langþreytt á aðgerðarleysinu.
Guðrún er langþreytt á aðgerðarleysinu.

Guðrún Jónína Magnúsdóttir bjó á árunum 2011 til 2019 nálægt bænum í Borgarfirði sem fjallað hefur verið um ítrekað nýverið vegna dýraníðs. Hún segist endurtekið hafa tilkynnt slæma meðferð á kúnum á bænum til héraðsdýralæknis og Matvælastofnunar. 

Kúnum hafi ekki verið hleypt út svo árum skipti. Þær hafi öskrað í fjósinu af vanlíðan. Hún hafi tilkynnt málið margsinnis til MAST en aldrei fengið nein svör.

Guðrún segir kúnum sjaldan hafa verið hleypt út en hún hafi fengið upplýsingar um það frá héraðsdýralækni að kýrnar í fjósinu hafi nær allar verið halabrotnar ásamt því að vera með áverka á sér eftir einhverskonar högg.

Fréttastofa hafði áður greint frá því að bóndinn á bænum hafi verið sakaður um brot gegn dýrum. Árið 2012 hafi þrír fyrrverandi vinnumenn á bænum upplýst MAST um það að gripir á bænum hefðu sætt harðýðgi af hálfu bóndans. 2013 hafi lögreglustjórinn í Borgarnesi gefið út ákæru á hendur bóndanum. Hann hafi verið grunaður um að hafa valdið halamissi, halabroti og halasliti hjá kúnum á bænum.

Guðrún segist fyrst hafa kvartað til MAST sumarið 2012 en þá hafi kýrnar ekki farið út, „það er kominn júní, og það er komið fram í júlí og þá hringi ég, fæ ekki að tala við neinn. Það er enginn við hjá MAST sem gat tekið kvörtun svo ég mátti senda tölvupóst, sem ég geri og nokkrum dögum seinna eru kýrnar komnar út,“ segir Guðrún.

Málið hafi haldið áfram á þennan veg og hún hafi sent inn kvörtun á hverju sumri til MAST, stundum nokkrum sinnum. Hún viti til þess að fleiri á svæðinu hafi einnig sent tilkynningar.

Sumarið 2019 segir Guðrún kýrnar ekki hafa farið út í tvö ár en hún flutti frá bænum í desember 2019.

Hún hafi þá sent inn tilkynningu í formi ljóðs til MAST en hún segist hafi aldrei fengið svar frá stofnuninni. Hvorki þess efnis að tilkynningarnar hafi verið mótteknar né að málið væri til skoðunar.


„Okkur langaði svo ósköp við ykkur að segja ..... HÆ!

Allar kusurnar sem eiga heima í fjósinu í Nýja-Bæ

og þakka innilega fyrir þennan eina dag

þá útivist, sem olli því við komumst í þennan brag

Við höfum árum saman verið innisetudýr

og alla vega viðkvæmar veðrabrigðakýr

við þolum ekki sólskin! Við þolum ekki regn!

Og það sem er inn á milli er okkur alveg um megn

Um kálfana á bænum gegnir alveg öðru máli

ætla mætti að þeir séu úr fínu gæðastáli

því allan ágústmánuð í sumar sáust þeir

sullast úti á engjum, já, við segjum ekki meir

Svo furðu snemma í gærmorgun þá fór um okkur hrollur

í fjósdyrunum birtist einhver skrýtinn skrattakollur

og rak okkur til dyra með dálítið ljótum orðum

dýrindis áralöng innivera alveg fór úr skorðum

Við höldum að þið hafið kannski átt einhvern þátt í því

að okkur var ýtt á foraðið og út í sérhvert dý

sem fundist getur í Bæjarsveit og þau eru fjölmörg nú

það er fáránlegt hvað fólki tekst að leggja á sómakú

Við gætum kannski núna verið komnar með klaufasvepp

sem kemur af því að vaða bleytu hér í þessum hrepp

Júgurbólgur innanstokks og jafnvel eitthvað fleira

já, okkur finnst að Mast þurfi af þessu að heyra

Að endingu við sendum ykkur oggo ponsu bón

af því við teljum sérhvert ykkar, vera okkar þjón

við viljum bara fá að vera í friði á okkar bás

falla aftur í gleymsku, Æ, skellið fjósinu í lás.

MUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU

ykkar kýrnar í Nýja-Bæ“


Ásakanir á hendur bónda í sveitinni og mæðgum, sem sögðu af sér varaþingmennsku hjá Flokki fólksins á dögunum, snúast um slæma meðferð á hestum. Fyrri eigendur hesta, sem seldu þau til bóndans, hafa óskað eftir að endurheimta þau.

MAST hefur svarað því til að geta ekki tjáð sig um einstök mál. Þá sé það mjög íþyngjandi aðgerð að fjarlægja dýr af bæjum þó heimild sé til þess í lögum. Ríkisendurskoðandi ætlar að taka út þann anga MAST sem snýr að eftirliti með dýravelferð.


Tengdar fréttir

Eigandinn hafi mætt með leyfi MAST til að flytja hryssuna og folaldið: „Fólk er við það að taka völdin í sínar hendur“

Íbúi í Borgarnesi sem hefur ítrekað kvartað vegna slæmrar meðferðar á hestum í Borgarfirði segir íbúa öskuilla þar sem eigendur hafi fengið leyfi MAST til að flytja illa haldna hryssu og folald sem höfðu verið innilokuð. Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu sé málið til skoðunar og samráðsfundur fari fram síðar í mánuðinum. Tilkynning Ríkisendurskoðunar um úttekt á eftirliti MAST hafi verið áfangasigur. 

Húðskamma MAST og vilja aðgerðir í Borgarbyggð strax

Eigandi hrossa í Borgarfirði, sem sakaður hefur verið um illa meðferð á skepnum sínum, hefur orðið við kröfum MAST og flutt hrossin á beit, að sögn dýralæknis hrossasjúkdóma hjá stofnuninni. Íbúi í nágrenninnu segir yfirvöld ekki aðhafast nóg - og alltof seint. Lögregla var kölluð til vegna málsins í gærkvöldi. Dýraverndarsambandið kallar eftir aðgerðum strax.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×