Albumm

„Ég fann aftur hvað það var sem sogaði mig að tónlistinni í upphafi"

Steinar Fjeldsted skrifar

Föstudaginn 2. september kom platan sýnir/athuganir út en það er fyrsta platan í fullri lengd sem tónlistarmaðurinn Hallur Már sendir frá sér.

Hallur Már var stofnmeðlimur í Leaves sem var í fararbroddi í íslensku tónlistar útrásinni í upphafi aldarinnar. sýnir/athuganir fylgir eftir stuttskífunni Gullöldin sem kom út árið 2019. Hljóðheimurinn er litríkur og marglaga þar sem elektróník er blandað saman við vettvangs upptökur og hljóðfæraleik. Á sama tíma og platan er persónuleg inniheldur hún þemu á stærri skala.

„Eftir að hafa tekið mér langt frí frá því að skapa og spila músík fann ég aftur hvað það var sem sogaði mig að tónlistinni í upphafi. Þá tóku að myndast þræðir og mynstur sem mynda nú þessar hljóðmyndir."

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.








×