Tónlist

Mynda­veisla: Há­tíð­leg opnun á vef vegna endur­greiðslu á hljóð­ritunar­kostnaði

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar, viðskipta og ferðamálaráðherra, hélt ræðu í opnun á nýjum vef hjá ÚTÓN.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar, viðskipta og ferðamálaráðherra, hélt ræðu í opnun á nýjum vef hjá ÚTÓN. Cat Gundry-Beck

Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar hélt hátíðlega upp á opnun á nýjum vef Record in Iceland en hann gengur út á að kynna 25% endurgreiðslur á hljóðritunarkostnaði sem fellur til hér á landi.

Leifur Björnsson, verkefnastjóri Record in Iceland hjá ÚTÓN, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, héldu stutta tölu til að kynna verkefnið og áframhaldandi fjárfestingar ráðuneytisins í tónlist, samanber kynningu ráðuneytisins á fyrstu íslensku tónlistarstefnunni og frumvarpi til heildarlaga um tónlist fyrr í ágúst.

Leifur Björnsson kynnti Record in Iceland fyrir viðstöddum.Cat Gundry-Beck

Endurgreiðslur á hljóðritunarkostnaði

Record in Iceland verkefnið gengur út á að kynna 25% endurgreiðslur á hljóðritunarkostnaði sem stofnað er til hér á landi. Framkvæmd kynningar er í höndum ÚTÓN en endurgreiðslurnar koma beint frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu,“ segir í fréttatilkynningu frá ÚTÓN.

Styrkir íslenska tónlist

Í tölu sinni gerði ráðherra grein fyrir að sambærilegt verkefni í kvikmyndaiðnaðinum, Film in Iceland, hafi gengið vonum framar og laðað hingað til lands stór alþjóðleg kvikmyndaverkefni á síðustu árum. Miklar væntingar eru fyrir því að sambærileg fjárfesting í tónlist muni skila sér í aukinni fagþekkingu innanlands og styrkja íslenska tónlist.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningarmálaráðherra, kynnti áframhaldandi fjárfestingar ríkisstjórnarinnar í íslenskri tónlist og Íslandi sem upptökustað fyrir alþjóðlegt tónlistarfólk.Cat Gundry-Beck

Verkefnið vann útflutningsverðlaun á Degi íslenskrar tónlistar í fyrra og í ár hefur ÚTÓN verið með kynningar á Record in Iceland í Bretlandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, á Norðurlöndunum og í Portúgal.

„Áhugi á upptökum hér á landi fer sívaxandi enda eru hljóðverin hér mörg hver á heimsmælikvarða. Endurgreiðslurnar standa íslensku tónlistarfólki einnig til boða,“ segir í tilkynningunni.

ÚTÓN og ráðherra buðu til móttöku fyrir fagaðila í tónlist en hér að neðan má sjá myndir úr teitinu, sem teknar voru af Cat Gundry-Beck.

Teitur Magnússon tók nokkur lög á gítarinn.Cat Gundry-Beck

Styrmir Hauksson upptökustjóri, Colm O’Herlihy stofnandi INNI Þublishing, Sindri Már Sigfússon tónlistarmaður skemmtu sér vel.Cat Gundry-Beck

Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri ásamt Páli Ragnari Pálssyni tónskáldi og Tui Hirv söngkonu.Cat Gundry-Beck

Fagaðilar úr skapandi greinum lyftu glösum fyrir ráðherra.Cat Gundry-Beck

Sindri Magnússon og María Björk Lárusdóttir, starfsfólk STEF, mættu í góðri stemninguCat Gundry-Beck

Tónskáldin Sævar Helgi Jóhannsson og Eðvarð Egilsson létu sig ekki vanta.Cat Gundry-Beck

Drykkirnir voru í boði Ólafsson Gin.Cat Gundry-Beck

Margrét Áskelsdóttir, listrænn stjórnandi Seðlabanka Íslands, brosti sínu breiðasta.Cat Gundry-Beck

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ásamt Haraldi Hrafni Thorlacius, kvikmyndaframleiðanda, Hrefnu Helgadóttur kynningarstjóra ÚTÓN og Kim Wagenaar, umboðsmanni.Cat Gundry-Beck

Lilja Alfreðsdóttir og Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi.Cat Gundry-Beck

Guðrún Björk, framkvæmdarstjóri STEF, var glaðbeitt við tilefnið.Cat Gundry-Beck
Leifur Björnsson, Sigurjón Sighvatsson, Sigtryggur Baldursson og Teitur Magnússon.Cat Gundry-Beck

Tengdar fréttir

Styður við frekari útflutning íslenskrar tónlistar

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar og ÚTÓN, Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, kynna nýjan styrk fyrir framleiðslu á kynningarefni sérstaklega. Þetta kemur til viðbótar við ferða- og markaðsstyrki sem þegar er hægt að sækja í sjóðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×