Golf

Smith leiðir Opna breska eftir dag tvö

Atli Arason skrifar
Cameron Smith átti frábæran hring í dag og er samtals á 13 höggum undir pari.
Cameron Smith átti frábæran hring í dag og er samtals á 13 höggum undir pari. Patrick Smith/Getty Images

Ástralinn Cameron Smith er í fyrsta sæti á Opna breska mótinu í golfi eftir annan hring mótsins. Mótið stendur yfir frá 14. til 17. júlí.

Smith fylgdi eftir öflugri frammistöðu sinni á fyrsta degi mótsins sem hann fór á fimm höggum undir pari með því að klára dag tvö á átta höggum undir pari sem gerir að verkum að hann leiðir Opna breska á samtals 13 höggum undir pari. Smith náði alls sex fuglum og einum erni í dag.

„Það er spennandi að leiða Opna breska eftir fyrstu tvö dagana,“ sagði Smith eftir daginn í dag áður en hann bætti við.

„Upplifunin á morgun á eftir að vera góð þar sem það eru fullt af Áströlum í áhorfendahópnum að fylgjast með. Ég er búinn að fá góðan stuðning fyrstu tvo dagana og get ekki beðið eftir næstu tveimur.“

Næstur á eftir Smith er hinn bandaríski Cameron Young sem er að keppa á sínu fyrsta á Opna breska. Young er tveimur höggum á eftir Smith, alls á 11 höggum undir pari.

„Ég er frekar til í að vera í öðru sæti en tíunda. Maður verður samt að spila gott golf yfir helgina hvort sem er, það er samt gott að vera meðal efstu manna,“ sagði Young við CBS

Í þriðja sæti eru Norður-Írinn Rory McIlroy, sem margir töldu sigurstranglegastan fyrir mótið, ásamt hinum 24 ára gamla Viktor Hovland frá Noregi. Hinn ungi Hovland hefur verið að vekja verðskuldaða athygli á fyrstu tveimur dögum mótsins.

Dustin Johnson er í fimmta sæti á samtals níu höggum undir pari og efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler, er í sjötta sæti ásamt Tyrell Hatton. Báðir eru þeir á átta höggum undir pari.

Það voru þó nokkrir stórkylfingar sem náðu ekki að forðast niðurskurðinn í dag. Tiger Woods, Brooks Koepka, Phil Mickelson eru á meðal þeirra sem hafa lokið leik á Opna breska meistaramótinu.

Opna breska meistaramótið heldur áfram klukkan 09.00 í fyrramálið í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf


Tengdar fréttir

Tárvotur Tiger komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Tiger Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á St. Andrews-vellinum í Skotlandi. Tiger átti erfitt uppdráttar frá upphafi, en honum var vel fagnað þegar hann gekk inn á 18. flöt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×