Bíó og sjónvarp

Rýnt í stiklu Rings of Power

Samúel Karl Ólason skrifar
BeFunky-collage

Amazon Studios birtu í dag nýja stiklu fyrir þættina The Rings of Power en þeir byggja á Hringadróttinssögu J.R.R. Tolkien. Þættirnir gerast þúsundum ára áður en Aragorn steig sín fyrstu skref í Rivendell.

Við fyrstu sýn er ansi margt að sjá í stiklunni og í senn lítið sem ekki neitt, eins og oft á við með stiklur sem þessa.

Þar bregður þó mörgum persónum fyrir og sömuleiðis mörgum stöðum sem aðdáendur söguheims Tolkiens ættu að kannast við.

Sjá einnig: Kafað í fyrstu stiklu Rings of Power

Hringadróttinssaga gerist á þriðju öld Miðgarðs en þættirnir á annarri öld. Þá voru hringar Saurons og hinir hringarnir smíðaðir og hjarðir orka og drýsla herjuðu á gervallan Miðgarð, þar til álfar og menn frá Númenor tóku höndum saman og mynduðu hið svokallaða síðasta bandalag álfa og manna.

Meðal annars fjalla þættirnir um Galadriel, álfadrottninguna sem Kate Blanchet lék í þríleiknum. Hún er leikin af Morfydd Clark en í upphafi hennar sögu mun hún vera að elta uppi þá sem þjónuðu hinum illa Melkor/Morgoth/Bauglir en fróðir lesendur vita ef til vill að Sauron sjálfur var einn þeirra.

Stikluna má sjá hér að neðan. Rings of Power verða frumsýndir á Prime Video þann 2. september.

Amazon birti í síðasta viku styttri stiklu en þar má sjá oggulítið myndefni sem er ekki sýnilegt í stiklunni hér að ofan.

Hér að neðan förum við lauslega yfir það sem sjá má í nýju stiklunni.

Hún hefst á því að við heyrum rödd segja að Miðgarður hafi einu sinni verið svo ungur að heimurinn hafi ekki enn upplifað sólarupprás. Þrátt fyrir það hafi verið ljós. Það ljós kom frá trjám Valinor, sem bregður fyrir í stikunni.

Tré Valinor.

Stærðarinnar örn á flugi.

Álfabær sem svipar mjög til Imladris (Rivendell). Sá bær ætti þó ekki að vera til á þeim tíma sem þættirnir gerast.

Nokkrir Harfoot að halda einhverskonar partí.

Þessi stelpa ku vera ein af aðalpersónum þáttanna en hún tilheyrir fólki sem kallast Harfoot og eiga að vera forferður Hobbita.

Galadriel og annar álfur en þau virðast hafa átt í erfiðleikum.

Hér má sjá borg manna, líklegast, og þá væntanlega á eyjunni Númenor.

Í stiklunni rifjar Galadriel upp mikil átök sem líklega eru frá hinu svokallað „War of Wrath“, þegar álfarnir og bandamenn þeirra börðust við Morgoth.

Skipi siglt til hafnar í annaðhvort Númenor eða Lindon.

Álfakonungurinn Gil-Galad (líklega) en hann er leikinn af Benjamin Walker.

Her Orka að fara yfir brú.

Þessi loðni maður er ekki í fókus í stiklunni en hann er sagður vera nokkuð mikilvægur sögu þáttanna.

Ungur Elrond með dvergunum, mögulega í Minas Tirith. Lesendur kannast ef til vill við leikarann en hann lék ungan Eddar Stark í Game of Thrones, þegar hann reyndi að bjarga systur sinni úr Tower of Joy.

Þetta er Halbrand en hann er leikinn af Charlie Vickers.

Álfurinn Arondir.

Galadriel ríður til orrustu með hermönnum Númenor.

Ungur Isildur á sjó, glöggir lesendur muna ef til vill eftir því að það var Isildur sem skar hringinn af fingri Sauron en neitaði að kasta honum í Mt. Doom.

Hér má sjá sjálfan Elendil, sem leikinn er af Lloyd Owen.

Þegar hér er að komið kemur hröð runa atriði þar sem sjá má mann á hesti með spjót, dvergaprinsinn Durin fjórða halda á einhverju glansandi, hóp álfa lyfta sverðum, hlekkjaðan Arondir hoppa undan árás stórs úlfs og Galadriel berjast við tröll.

Hér er loðni maðurinn mættur aftur og við frekar undarlegar kringumstæður. Hann virðist krjúpa í logandi hrauni og grjót svífur í loftinu í kringum hann.

Harfott-ar á göngu um fallegan Miðgarð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×