Innlent

„Vagn­stjórinn hefði ekki getað brugðist við á annan hátt“

Atli Ísleifsson skrifar
Strætisvagninn var á leið þrjú og var á leiðinni á Hlemm þegar atvikið átti sér stað á Sæbrautinni við Olís-stöðina við Skúlagötu.
Strætisvagninn var á leið þrjú og var á leiðinni á Hlemm þegar atvikið átti sér stað á Sæbrautinni við Olís-stöðina við Skúlagötu. Vísir/Vilhelm

„Myndbandsupptaka úr strætisvagninum bendir til að vagnstjórinn hefði ekki getað brugðist við á annan hátt.“

Þetta segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um atvik sem varð á Sæbraut, nærri Olís-stöðinni, um klukkan 13:45 í gær þegar strætisvagn ók á mann. Guðmundur segir að ýmislegt bendi til að maðurinn hafi hlaupið í veg fyrir bílinn, en að málið væri enn í skoðun.

Að sögn slökkviliðs hlaut maðurinn tvo skurði á höfði en hafi að öðru leyti borið sig vel.

Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, segir að í samtali við Vísi að upptökum úr öryggisvélum strætisvagninum hafi verið komið í hendur lögreglu í gær. Þá hafi vagnstjóranum verið kippt af vaktinni í gær og annar tekið við leiðinni.

„Hann er samt mættur aftur á vaktina í dag og ber sig vel. Hann afþakkaði áfallahjálp,“ segir Guðmundur Heiðar.

Strætisvagninn var á leið þrjú og var á leiðinni á Hlemm þegar atvikið átti sér stað.


Tengdar fréttir

Strætis­vagn ók á gangandi veg­faranda

Ökumaður strætisvagns ók á gangandi vegfaranda á Sæbraut í Reykjavík fyrr í dag. Að sögn slökkviliðs hlaut vegfarandinn tvo skurði á höfði og var fluttur á slysadeild. Hann hafi að öðru leyti borið sig vel.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×