Gamlir mótherjar mætast á Landsmóti UMFÍ 50+ UMFÍ 14. júní 2022 10:27 Garðar Jónsson tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ í þriðja sinn og segir það alltaf jafn gaman. Hann ætlar að rifja upp meistaratakta í bæði körfu og fótbolta enda þrautreynd kempa á vellinum. Skessuhorn/mm „Þarna fær maður tækifæri til að rifja upp mjög gamla takta og spila við gamla keppinauta sem maður hefur kannski ekki séð í mörg ár. Keppnisandinn er enn til staðar og menn stífna upp í vöðvum og fá tak í nára, sem er mjög vinsælt á Landsmótinu 50+. Ég fékk einmitt tak aftan í læri á síðasta móti þannig að þetta kemur fyrir bestu menn,“ segir Garðar Jónsson en hann tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Borgarnesi 24. til 26. júní. Það skapast ávallt frábær stemming á vellinum á Landsmóti UMFÍ 50+. Myndin er frá vel heppnuðum leik á síðasta móti. Garðar keppir fyrir UMSB í fótbolta og körfubolta á Landsmótinu og hlakkar til. „Ég hef tekið þátt í þremur Landsmótum UMFÍ 50+ og þetta er alltaf jafn gaman. Við Gunni bróðir stefnum á að spila saman í ár en það eru ca 40 ár síðan við spiluðum saman með Skallagrími í fótbolta og körfubolta,“ segir Garðar en þeir bræður gerðu einmitt garðinn frægan með Skallagrími og náðu vel saman á fótboltavellinum svo eftir var tekið. Garðar er næst markahæsti leikmaður Skallagríms frá upphafi í fótbolta auk þess sem hann hefur þjálfað félagið bæði í körfubolta og fótbolta. Hann lék fótbolta með meistaraflokki Skallagríms frá 1979 til 1984 fékk síðan tilboð um að þjálfa og spila úti á landi aðeins 22 ára með góðum árangri. Garðar var einnig liðtækur í körfunni og rifjar upp þegar Skallagrímur spilaði gegn Ármanni í Borgarnesi. Leikurinn endaði 112-100 fyrir Ármann en þar skoraði Danny Shouse 100 stig í leiknum og þarna var ekki 3ja stiga reglan komin. 100 stig í leik er stigamet á Íslandi segir Garðar og á síður von á að það met verði slegið á Landsmótinu UMFÍ 50+ eða hvað? „Varla, en vonandi fáum við klapp á bakið fyrir að gera góða hluti inn á vellinum,“ segir hann, það sé mikil tilhlökkun í Borgarnesi fyrir mótinu og allir tilbúnir að taka á móti þeim fjölda gesta sem kemur í Borgarnes. „UMSB og Borgarbyggð hafa góða reynslu af að halda svona mót og íþróttaaðstaðan er með þeim bestu á landinu, fjöldi sjálfboðaliða kemur að svona móti og ég efast ekki um að þetta Landsmót UMFÍ 50+ verði UMSB og Borgarbyggð til sóma,“ segir Garðar. Keppt er í fjölbreyttum greinum svo sem stígvélakasti, pönnukökubakstri, bridds, frjálsum íþróttum, boccia svo fátt eitt sé nefnt. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má fletta í gegnum svipmyndir síðasta móts: Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Þátttökugjald er aðeins 4.900 kr. Skráningarfrestur er til 19. júní. Frjálsar íþróttir Heilsa Borgarbyggð Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira
Það skapast ávallt frábær stemming á vellinum á Landsmóti UMFÍ 50+. Myndin er frá vel heppnuðum leik á síðasta móti. Garðar keppir fyrir UMSB í fótbolta og körfubolta á Landsmótinu og hlakkar til. „Ég hef tekið þátt í þremur Landsmótum UMFÍ 50+ og þetta er alltaf jafn gaman. Við Gunni bróðir stefnum á að spila saman í ár en það eru ca 40 ár síðan við spiluðum saman með Skallagrími í fótbolta og körfubolta,“ segir Garðar en þeir bræður gerðu einmitt garðinn frægan með Skallagrími og náðu vel saman á fótboltavellinum svo eftir var tekið. Garðar er næst markahæsti leikmaður Skallagríms frá upphafi í fótbolta auk þess sem hann hefur þjálfað félagið bæði í körfubolta og fótbolta. Hann lék fótbolta með meistaraflokki Skallagríms frá 1979 til 1984 fékk síðan tilboð um að þjálfa og spila úti á landi aðeins 22 ára með góðum árangri. Garðar var einnig liðtækur í körfunni og rifjar upp þegar Skallagrímur spilaði gegn Ármanni í Borgarnesi. Leikurinn endaði 112-100 fyrir Ármann en þar skoraði Danny Shouse 100 stig í leiknum og þarna var ekki 3ja stiga reglan komin. 100 stig í leik er stigamet á Íslandi segir Garðar og á síður von á að það met verði slegið á Landsmótinu UMFÍ 50+ eða hvað? „Varla, en vonandi fáum við klapp á bakið fyrir að gera góða hluti inn á vellinum,“ segir hann, það sé mikil tilhlökkun í Borgarnesi fyrir mótinu og allir tilbúnir að taka á móti þeim fjölda gesta sem kemur í Borgarnes. „UMSB og Borgarbyggð hafa góða reynslu af að halda svona mót og íþróttaaðstaðan er með þeim bestu á landinu, fjöldi sjálfboðaliða kemur að svona móti og ég efast ekki um að þetta Landsmót UMFÍ 50+ verði UMSB og Borgarbyggð til sóma,“ segir Garðar. Keppt er í fjölbreyttum greinum svo sem stígvélakasti, pönnukökubakstri, bridds, frjálsum íþróttum, boccia svo fátt eitt sé nefnt. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér má fletta í gegnum svipmyndir síðasta móts: Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Þátttökugjald er aðeins 4.900 kr. Skráningarfrestur er til 19. júní.
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Þátttökugjald er aðeins 4.900 kr. Skráningarfrestur er til 19. júní.
Frjálsar íþróttir Heilsa Borgarbyggð Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira