Formúla 1

Lewis Hamilton sagði frá því þegar hann vann kappakstur með annarri hendi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton undirbýr sig fyrir spænska kappaksturinn um helgina.
Lewis Hamilton undirbýr sig fyrir spænska kappaksturinn um helgina. AP/Manu Fernandez

Formúlukappinn Lewis Hamilton hefur átt magnaðan feril en hann hefur líka þurft að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika til að ná svona langt.

Eftir fjögurra ára stanslausa sigurgöngu, sjö heimsmeistaratitla og síðan grátlegan endi á síðasta formúlu eitt tímabili þá er Lewis Hamilton í vandræðum með bílinn sinn í ár.

Hamilton er aðeins í sjötta sætinu eftir sex keppnir nú 64 stigum á eftir heimsmeistaranum Max Verstappen sem hefur 110 stig á móti 46 stigum hjá Hamilton.

Í öllu þessu mótlæti í ár þá ákvað Hamilton að rifja upp sögu frá upphafi ferilsins þar sem mikill viljastyrkur hjálpaði honum að keppa þegar hann átti ekki að geta það.

Sagan kemur í framhaldi af endurkomu Hamilton í spænska kappakstrinum um síðustu helgi.

Þar gekk mikið á hjá breska ökukappanum sem bæði lenti í óhappi sem þýddi að hann datt mjög aftarlega í keppninni og þá var hann líka í vandræðum með vélina. Hann fór síðan úr nítjánda sæti og upp í það fimmta.

„Þegar ég var fimmtán ára þá datt ég af hjólinu mínu og meiddi mig á úlnlið. Næsta dag fann ég svo mikið til að ég labbaði sjálfur upp á spítala þar sem læknarnir sögðu mér að ég væri úlnliðsbrotin og þyrfti að fara í gips. Ég var nýbyrjaður í evrópsku Formúlu A keppninni og þetta þýddi að ég gæti ekki keppt,“ skrifaði Lewis Hamilton á Twitter og hélt svo áfram.

„Ég var svo óttasleginn um að ég gæti misst McLaren samninginn minn. Ég gerði því það sem ég þurfti. Ég lét fjarlægja gipsið og fékk léttara gips í staðinn. Ég keppti síðan með annarri hendi. Ég vann þessa keppni,“ skrifaði Lewis.

„Ég hef vitað það síðan þá að þú getur komist í gegnum allt ef þú ert tilbúinn að berjast fyrir því. Hvort sem það er að keppa meiddur á úlnlið eða að vinna mig upp eins og ég gerði um síðustu helgi. Það sama gildir um þig. Ef þú berst fyrir því sem þú vilt þá nærðu því,“ skrifaði Lewis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×