Handbolti

Teitur og félagar í átta liða úrslit þrátt fyrir tap | Norsku meistararnir fengu skell

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk í kvöld.
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk í kvöld. Frank Molter/picture alliance via Getty Images

Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg eru komnir áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þrátt fyrir 36-35 tap gegn Pick Szeged í kvöld. Íslendingalið Elverum er hins vegar úr leik eftir stórt tap gegn PSG.

Teitur og félagar unnu fyrri leik liðanna á heimavelli með fjögurra marka mun, 25-21, og voru því í góðri stöðu fyrir leik kvöldsins.

Jafnræði var með liðunum allt frá fyrstu mínútu í kvöld og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 18-17, Flensburg í vil.

Heimamenn í Pick Szeged náðu að ógna forskoti Flenburg í síðari hálfleik og náðu mest þriggja marka forystu í stöðunni 33-30. Gestirnir í Flensburg skoruðu hins vegar næstu þrjú mörk og að lokum varð niðurstaðan eins marks sigur Pick Szeged, 36-35.

Teitur skoraði fimm mörk fyrir Flensburg sem vann viðureignina samanlagt með þriggja marka mun og er á leið í átta liða úrslit þar sem Barcelona bíður þeirra.

Þá þurftu norsku meistararnir í Elverum að sætta sig við sjö marka tap gegn PSG, 37-30. Með Elverum leika þeir Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur Pálsson, en hvorugur þeirra komst á blað í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli, 30-30, en eftir úrslit kvöldsins er liðið úr leik.

PSG er hins vegar á leið í átta liða úrslit þar sem andstæðingar þeirra verða Kiel frá Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×