Handbolti

Íslendingar mæta Tékkum, Ísraelum og Eistum í undankeppni EM

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska landsliðið endaði í 6. sæti á EM í janúar og var afar nálægt því að komast í undanúrslit.
Íslenska landsliðið endaði í 6. sæti á EM í janúar og var afar nálægt því að komast í undanúrslit. Getty/Jure Erzen

Eftir að hafa endað í 6. sæti á EM karla í handbolta í janúar er Ísland á leið í nýja undankeppi fyrir EM 2024 í Þýskalandi. Dregið var í riðla fyrir undankeppnina í dag.

Ísland var í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn í dag og hafnaði í riðli með Eistlandi, Ísrael og Tékklandi. Alls eru átta riðlar, en undankeppnin hefst í október.

Ásamt Íslendingum voru Norðmenn, Frakkar, Króatar, Slóvenar, Ungverjar, Portúgalar og Austurríkismenn í efsta styrkleikaflokki.

Gestgjafar Þýskalands og þrjú efstu liðin frá því á EM í janúar; Svíþjóð, Spánn og Danmörk, hafa þegar tryggt sér sæti á EM.

Drátturinn í heild sinni

Riðill 1: Lúxemborg, Tyrkland, Norður-Makedónía og Portúgal

Riðill 2: Finnland, Slóvakía, Serbía og Noregur

Riðill 3: Eistland, Ísrael, Tékkland og Ísland

Riðill 4: Færeyjar, Rúmenía og Úkraína

Riðill 5: Belgía, Grikkland, Holland og Króatía

Riðill 6: Georgía, Litáen, Sviss og Ungverjaland

Riðill 7: Kósovó, Bosnía, Svartfjallaland og Slóvenía

Riðill 8: Ítalía, Lettland, Pólland og Frakkland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×