Handbolti

Úkraína varð að gefa frá sér möguleikann á stórmóti með strákunum okkar

Sindri Sverrisson skrifar
Oleksandr Tilte og liðsfélagar hans í úkraínska landsliðinu léku á EM í janúar en fá ekki að freista þess að komast inn á HM sem fram fer í janúar á næsta ári.
Oleksandr Tilte og liðsfélagar hans í úkraínska landsliðinu léku á EM í janúar en fá ekki að freista þess að komast inn á HM sem fram fer í janúar á næsta ári. Getty

Á meðan að strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta freista þess í næsta mánuði að tryggja sig inn á HM 2023 eiga Úkraínumenn ekki lengur möguleika á því vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Úkraína átti að mæta Finnlandi í umspilsleikjum í þessum mánuði en ekkert verður af þeim vegna stríðsins.

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, greindi frá því í gær að úkraínska handknattleikssambandið hefði upplýst EHF um að vegna núverandi stöðu gæti Úkraína ekki splað leikina tvo sem fara áttu fram 16. og 20. mars.

Finnum var því úrskurðaður 10:0-sigur í báðum leikjum og þeir komast áfram.

Finnland mætir því Króatíu í apríl í tveimur leikjum um sæti á HM. Ísland mætir sigurvegaranum úr einvígi Austurríkis og Eistlands í sama umspili.

Rússar og Hvít-Rússar dæmdir úr keppni

Áður hafði Rússlandi og Hvíta-Rússlandi verið vísað úr keppni vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þar með er einvígi Slóvakíu og Belgíu um laust sæti á HM en ekki um það að mæta Rússum í umspili, og Færeyingar komust beint á seinna stig umspilsins því þeir áttu að mæta Hvít-Rússum á fyrra stiginu. Færeyjar mæta Þýskalandi á seinna stiginu í apríl.

Úkraínumenn hafa tvívegis verið með á HM, síðast árið 2007, og komist inn á tvö síðustu lokamót EM en þeir urðu í 24. og neðsta sæti á EM í janúar.

HM 2023 fer fram í Svíþjóð og Póllandi í janúar á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×