Erlent

Auðugir Rússar eru au­fúsu­gestir

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Fjölmargir Rússar eiga lystisnekkjur á Marbella. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fjölmargir Rússar eiga lystisnekkjur á Marbella. Myndin tengist fréttinni ekki beint. KEN WELSH/GETTY

Þúsundir auðugra Rússa hafa á síðustu árum sest að á Spáni og búa í miklum vellystingum. Grunur leikur á að auð margra þeirra megi rekja til rússnesku mafíunnar. Á sama tíma hafa 15.000 ríkisborgarar Úkraínu sótt um hæli sem flóttamenn, en örfáum úr þeim hópi hefur verið veitt hæli.

Marbella er paradís milljarðamæringanna á Spáni. Og reyndar er Marbella líka paradís glæpamanna og glæpasamtaka á Spáni, enda fer þetta tvennt reyndar stundum saman; að vera glæpamaður og milljarðamæringur. Til dæmis þegar kemur að Rússum búsettum á Marbella.

Á þriðja þúsund Rússa er búsett á Marbella. Þeir eru taldir eiga um 10% af öllum lúxusvillunum á svæðinu, þeir eiga lúxussnekkjur sem kosta milljarða króna og þeir ferðast eins og pendúll á milli Costa del Sol og Moskvu, þangað til stríðið í Úkraínu stöðvaði flugsamgöngur þar á milli.

Illa fengið fé?

Spænsk stjórnvöld hefur lengi grunað að stór hluti hinna rússnesku fjármuna sem leika lausum hala á Marbella séu peningar frá rússnesku mafíunni. Talsmenn lögreglunnar segja að rússnesk stjórnvöld sýni engan vilja til samvinnu og veiti engar upplýsingar um uppruna hins rússneska auðs. Þeir segja að rússneskir glæpamenn á Marbella stundi aðallega eiturlyfjasmygl og -sölu og peningaþvætti í stórum stíl.

Spænska lögreglan hefur á síðustu árum gert nokkrar atlögur að rússneskri glæpastarfsemi. Síðast fyrir fimm árum þegar rússneskur eigandi og forseti fótboltaliðsins Marbella var handtekinn grunaður um að starfa fyrir rússnesku mafíuna. Í sömu aðgerð voru 10 Rússar til viðbótar handteknir, margir grunaðir um að vera háttsettir innan rússnesku mafíunnar.

Jón og séra Jón

Engu að síður hafa Rússar verið aufúsugestir á Spáni mörg síðastliðin ár, rétt eins og víðar á Vesturlöndum. Með þeim kemur jú sandur af seðlum og þá virðast stjórnvöld, líka á Vesturlöndum, gjarnan horfa í gegnum fingur sér hvort peningurinn sé illa fenginn.

Allt er þetta í napurri og dapurlegri andstöðu við þær móttökur sem úkraínskir flóttamenn hafa fengið hér á Spáni allt frá árinu 2014 þegar Rússar réðust inn í og innlimuðu Krímskaga.

Síðan þá hafa 15.000 Úkraínumenn leitað hælis hér á Spáni, einungis 1% þeirra hefur fengið hæli, allir hinir hafa fengið synjun eða er hreinlega ekki svarað og margir eru hér í felum og búa við sult og seyru.

Þeir eru nefnilega ekki auðugir Rússar, heldur venjulegt úkraínsk fólk að flýja ofríki Rússa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×