Bíó og sjónvarp

Berdreymi verðlaunuð á Berlinale og verður sýnd í 44 löndum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Guðmundur Arnar skrifaði handritið og með helstu hlutverk fara ungstirnin Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson, og Snorri Rafn Frímannsson, ásamt þeim þaulreyndu Anítu Briem, Ólaf Darra Ólafssyni og Ísgerði Gunnarsdóttur.
Guðmundur Arnar skrifaði handritið og með helstu hlutverk fara ungstirnin Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson, og Snorri Rafn Frímannsson, ásamt þeim þaulreyndu Anítu Briem, Ólaf Darra Ólafssyni og Ísgerði Gunnarsdóttur. Aðsent

Samtök evrópska kvikmyndahúsa, Europa Cinemas, hafa valið íslensku kvikmyndina Berdreymi sem bestu evrópsku kvikmyndina í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.

Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson. var heimsfrumsýnd á Berlinale á föstudag. Vísir frumsýndi sýnishorn úr myndinni í síðustu viku. 

„Dómnefndin segir meðal annars að Berdreymi sé ódæmigerð fyrir íslenska kvikmynd, engin stórbrotin náttúra heldur hrátt borgarlandslag sem er kvikmyndað á sérlega sterkan og skapandi máta. Sagan sé vissulega hörð sýn á hóp unglingspilta en að það sé hlýjan samhliða ofbeldinu sem gerir myndina einstaka. Berdreymi er bókstaflega kvikmynd sem krefjist þess að verða séð af áhorfendum,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar. 

Frá Berlinale kvikmyndahátíðinni.Aðsent

Anton Máni Svansson framleiðandi Berdreymi tók á móti verðlaunum í Berlín fyrir hönd myndarinnar.

„Verðlaunin eru þýðingarmikil en Samtök Evrópska Kvikmyndahúsa munu styðja við dreifingu Berdreymi um alla Evrópu eða í allt að 1143 kvikmyndahúsum í 44 löndum sem eru hluti af samtökunum.“

Myndin er önnur kvikmynd Guðmundar Arnars í fullri lengd á eftir hinni margverðlaunuðu Hjartasteinn sem vakti mikla lukku meðal landsmanna og fór sigurför um kvikmyndahátíðir heimsAðsent

Berdreymi var heimsfrumsýnd á Berlinale síðastliðin föstudag og hefur fengið gífurlega góðar viðtökur bæði frá áhorfendum og gagnrýnendum sem hafa lofað myndina hástert.

„Gagngrýnandi Screen Daily segir myndina áhrifamikla og hrósar sérstaklega ungu leikurunum. Gagngrýnandi Upcoming segir galdur myndarinnar sé í framkvæmdinni sem sé bæði fersk og sannfærandi. Gagngrýnandi Filmuforia segir að einstakur ljóðrænn stíl Guðmundar setji hann í hóp mest spennandi listrænna leikstjóra starfandi í dag.“

Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem alinn er upp af móður með skyggnigáfu. Einn daginn ákveður Addi að taka eineltisfórnarlamb undir sinn verndarvæng og inn í vinahóp slagsmálahunda. Án eftirlits, leika strákarnir sér að eyðileggingu og ofbeldi en kynnast einnig sannri vináttu. Þegar hegðun strákana stigmagnast yfir í lífshættulega atburði, fer Addi að upplifa eigin skynjanir. Mun innsæi hans beina vinunum á öruggari braut eða munu strákarnir sökkva lengra inn í heim ofbeldis?

Frá Berlinale heimsfrumsýningunni á Berdreymi.Aðsent

Guðmundur Arnar skrifaði handritið og með aðalhlutverk fara ungstirnin Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson, og Snorri Rafn Frímannsson, ásamt þeim þaulreyndu Anítu Briem, Ólaf Darra Ólafssyni og Ísgerði Gunnarsdóttur. Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir hönd Join Motion Pictures, en myndin er samstarfsverkefni fimm landa með meðframleiðendur frá Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og Tékklandi.

Sýnishorn úr myndinni má sjá hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Íslendingar flýja vonda veðrið

Svo virðist sem allir og amma þeirra séu erlendis þessa dagana. Kannski ekki skrítið að fólk stökkvi upp í flugvél þegar veðrið er svona leiðinlegt hér á klakanum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×