Innlent

Skilur að marga svíði vegna óréttlætis en kallar eftir hófsemi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Steingrímsson segir að fólk muni skilja með tímanum hvers vegna hann tjái sig ekki efnislega um málið.
Páll Steingrímsson segir að fólk muni skilja með tímanum hvers vegna hann tjái sig ekki efnislega um málið.

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, segir undanfarna daga hafa verið honum og hans fólki mjög erfiðir. Hann hefur fulla trú á því að rannsókn lögreglu á hvarfi síma hans muni leiða hið sanna í ljós. Hann gefur í skyn að málið sé viðkvæmt en fólk muni skilja hvers vegna hann vilji ekki ræða málið efnislega þegar upplýst verði opinberlega um málið.

Garðar G. Gíslason, lögmaður Samherja, tjáði Vísi í maí í fyrra að síma Páls hefði verið stolið af honum þar sem hann lá alvarlega veikur á sjúkrahúsi á Akureyri í apríl í fyrra.

Garðar fullyrti að Páll hefði verið lífshættulega veikur og að sími hans hafi verið tekinn ófrjálsri hendi þegar hann lá á sjúkrahúsinu. Veikindi Páls hafi verið svo alvarleg að hann hafi um tíma verið í öndunarvél.

„Maðurinn var mjög alvarlega veikur þegar þetta gerist og það er verið að skoða það líka hvers eðlis þau veikindi voru,“ sagði Garðar. Hann bætti við að ótímabært væri að álykta um hvort að tengsl séu á milli þjófnaðarins og veikindanna.

Brot gegn friðhelgi einkalífs til rannsóknar

Eins og fram hefur komið hafa fjórir blaðamenn stöðu sakbornings í málinu og stendur til að yfirheyra þá vegna málsins. Eru þeir grunaðir um að hafa brotið brotið gegn ákvæðum hegningarlaga um friðhelgi einkalífs. 

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur lítið viljað tjá sig um málið en sendi frá sér stutta yfirlýsingu á þriðjudag. Blaðamennirnir hafa sjálfir staðfest að þeir hafi stöðu sakbornings í málinu en ekki hefur komið fram hvort fleiri hafi stöðu sakbornings í málinu.

Í tilefni af umræðu í fjölmiðlum um rannsókn máls hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vill embættið koma eftirfarandi á framfæri.

 Embættið er með brot gegn friðhelgi einkalífs til rannsóknar og er málið í hefðbundnum farvegi. Liður í rannsóknum sakamála er að fram fari skýrslutökur af aðilum og vitnum í því skyni að upplýsa mál. 

Vegna rannsóknarhagsmuna mun embættið ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Málið hefur verið til umfjöllunar undanfarna mánuði og hefur Páll Vilhjálmsson, bloggari á Moggablogginu, verið fyrirverðamikill í skrifum sínum um málið og hent fram ýmsum kenningum. Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni og Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum, tveir af blaðamönnunum sem bíða þess að verða yfirheyrðir, hafa svarað ýmsum kenningum máls í pistlum á eigin miðlum og viðtölum. 

Hefur Páll meðal annars fullyrt um að eitrað hafi verið fyrir skipstjóranum. Ekki hefur komið fram hver liggi þar undir grun.

„Ertu í alvöru að spyrja hvort ég hafi eitrað fyrir Páli Steingrímssyni?“ sagði Aðalsteinn þegar blaðamaður Vísis heyrði í honum hljóðið í nóvember.

Aðalsteinn ákvað svo sjálfur að gera grein fyrir því hvernig þessar ásakanir horfa við sér í pistli sem hann birtir á Stundinni og kallar „Svar við ásökun um glæp“. Aðalsteinn segir það ekki glæp að segja fréttir jafnvel þó einhverjum líki illa við það. Og þá helgi tilgangurinn meðalið:

„Líka að ljúga. Stimpla blaðamenn sem „geðveika“ og saka þá um að fremja glæpi, jafnvel banatilræði. Ég veit hreinlega ekki hvað er til ráða gagnvart svona samsæriskenningum. Meiðyrðamál mun líklega engu breyta. Svona svar kannski ekki heldur. Yfirleitt næ ég að hunsa svona málflutning, hvort sem hann birtist á Moggablogginu eða í kommentakerfinu, en þetta var sérstaklega ósvífið.“

Þórður Snær hafnaði þessu einnig sem yfirgengilegu og meiðandi rugli í pistli undir yfirskriftinni „Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar“. Hann sagði að staðhæfingar Páls ekki í nokkru samhengi við raunveruleikann. Hvorki hann néð aðrir starfsmenn Kjarnans hafi verið yfirheyrðir.

„Til að taka af allan vafa: það er enginn blaðamaður til rannsóknar fyrir að hafa reynt að drepa skipstjóra, né fyrir að stela símanum hans. Þetta er hugarburður og áróður til að reyna að grafa undan þeim blaðamönnum sem komu að umfjöllun Kjarnans og Stundarinnar um „skæruliðadeildina“ og RÚV fyrir að hafa opinberað Namibíumál Samherja fyrir rúmum tveimur árum,“ sagði Þórður Snær.

Biður fólk að gæta hófs í orðum í garð blaðamanna

Páll segir í færslu sinni á Facebook, sem snertir ekki efnislega á málinu heldur er á persónulegum nótum, að síðustu dagar hafi verið sér og sínum mjög erfiðir enda hátt reitt til höggs og yfirlýsingar ekki sparaðar.

„Ég bý hins vegar svo vel að eiga góða að og hefur stuðningur eigenda Samherja og starfsmanna fyrirtækisins verið mér ómetanlegur,“ segir Páll.

„Ég er líka djúpt snortinn yfir stuðningi allra vina minna, kunningja og meira að segja ókunnugs fólks sem hefur haft fyrir því að senda mér falleg skilaboð og hringja í mig. Ég skil vel að marga svíði undan óréttlætinu en vil biðja fólk um að gæta hófs í orðum í garð þeirra fjölmiðlamanna sem nú hafa stöðu sakbornings í sakamálarannsókn lögreglunnar. Slík formleg staða er ekki ávísun á sekt heldur veitir sakborningum mikilvæg réttindi til að gæta hagsmuna sinna. Gleymum því ekki heldur að þessir aðilar eiga fjölskyldur, börn, maka, foreldra, systkini og vini sem sárnar umræðan skiljanlega.“

Orð geti sært.

„Ég hef fulla trú á að lögreglan vinna að rannsókn þessa máls af heilindum og að hún muni leiða hið sanna í ljós. Vil ég því biðja ykkur um að sýna lögreglu biðlund en ég er þess fullviss að þið munið skilja þögn mína þegar sá tímapunktur kemur að upplýst verði opinberlega um málið. Þar sannast hið fornkveðna að bylur hæst í tómri tunnu,“ segir Páll.

„Undanfarnir mánuðir hafa tekið mjög á mig og fjölskyldu mína en það hefur veitt mér styrk að finna stuðninginn frá ykkur. Er ég ykkur afar þakklátur og bið ykkur um að hafa orð mín í huga.“

Ráðherra tjáir sig um málið

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur látið sig málið varða. Hann gagnrýndi í vikunni fréttaflutning um þá ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra að boða fjóra fréttamenn til yfirheyrslu í tengslum við umfjöllun um svokallaða skæruliðadeild Samherja.

Í langri færslu á Facebook-síðu sinni spurði hann hvernig það gæti talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu og hvort fjölmiðlamenn væru of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar.

Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamannahvetja svöruðu Bjarna í gær og hvöttu valdhafa til að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi frekar en að freistast til að ráðast gegn henni.

„Lagaleg sérstaða blaða- og fréttamanna í störfum sínum ætti því að vera skýr. Vandséð er hverju blaða- og fréttamennirnir fjórir geta svarað umfram það í yfirheyrslum hjá lögreglu,“ sagði í yfirlýsingu Blaðamannafélagsins og Félags fréttamanna.

Margar hættur steðji að frjálsri og óháðri blaða- og fréttamennsku á Íslandi. Blaða- og fréttamönnum hafi fækkað um tæpan helming á árunum 2018 til 2020. Þá hafi nýleg rannsókn leitt í ljós að 45% íslenskra blaða- og fréttamanna hafi upplifað hótanir eða ógnanir í starfi á undanförnum fimm árum, 16% umsáturseinelti, og 15% verið lögsótt vegna starfa sinna.

„Við þessar þröngu starfsaðstæður bætist nú sú ógn að lögregla boði blaða- og fréttamenn til yfirheyrslu með réttarstöðu sakbornings fyrir hegningarlagabrot, fyrir það eitt að stunda vinnu sína.“


Tengdar fréttir

Bjarni hafnar því að hann þjófkenni Þórð Snæ

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans hnýtir í Facebookfærslu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þess efnis að ekkert sé óeðilegt við að blaðamenn séu kallaðir til yfirheyrslu í sakamáli; að Bjarni gefi í skyn að hann sé þjófur. Bjarni telur þetta fráleita túlkun.

Skæru­liða­deildin sem nú vill ná vopnum sínum

Fjórir íslenskir blaðamenn hafa verið boðaðir til yfirheyrslu af lögreglu vegna umfjöllunar þeirra um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. En hver er þessi deild, hvað gerði hún og hvers vegna er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×