Tónlist

Frumsýna myndbandið við Hjartað mitt: „Sjö ára dóttir mín er innblásturinn af þessu lagi“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stefanía Svavars og Halldór Gunnar sameinuðu krafta sína í Söngvakeppninni í ár með lagið Hjartað mitt.
Stefanía Svavars og Halldór Gunnar sameinuðu krafta sína í Söngvakeppninni í ár með lagið Hjartað mitt. Aðsend

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu myndbandi við lagið „Hjartað mitt“, sem er eitt þeirra laga sem tekur þátt í undankeppni Eurovision hér á landi í ár. Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson er höfundur lagsins og Magnús Þór Sigmundsson skrifar textann en Stefanía Svavarsdóttir flytur lagið.

Í samtali við Lífið á Vísi segir Halldór Gunnar að Kristín Heiða, sjö ára gömul dóttir hans, sé innblásturinn af þessu lagi.

„Hún spurði mig í fyrra eftir lokakeppnina í Hollandi hvenær ég ætlaði eiginlega að taka þátt. Ég hugsaði mikið um þessa spurningu og þegar ég loks lét slag standa um að reyna að semja Eurovision lag þá var ég staðráðin í því að semja lag um hana og fyrir hana. 

Mig langaði að eiga þetta ævintýri með henni,“

segir Halldór Gunnar og bætir við ,,Hjartað mitt var það fyrsta sem kom í kollinn á mér og svo fæddist lagið hratt og örugglega.“

Mikil gleði fylgdi ferlinu

„Með þessa hugmynd í kollinum þá var ég frekar fljótur að detta niður á lag. Þegar lagið var nokkurn veginn komið hafði ég samband við vin minn í Hveragerði hann Magnús Þór Sigmundsson og hann samdi við lagið bæði íslenskan og enskan texta.“

Eftir það var svo komið að því að finna flytjanda.

„Stefanía Svavarsdóttir kom mjög fljótt inn í ferlið og var búin að segjast vera til í að taka þátt með mér áður en lagið var klárt. Hún var fyrir mér manneskjan sem átti að flytja þetta lag.

Frábær söngkona með hjartað á réttum stað og skildi strax hvað ég var að reyna að segja með laginu,“

 segir Halldór Gunnar en slík samvinna hlýtur að vera gríðarlega mikilvægt.

„Upptökuferlið gekk svo nokkuð hratt og örugglega fyrir sig. Ég, Stefanía, Magnús Þór og Halldór Smárason unnum síðan mjög náið saman í því að koma þessu heim og saman og var mikil gleði sem fylgdi því ferli.“

Stefanía Svavars og Halldór Gunnar fyrir utan Söngvakeppnis strætóinn.Aðsend

Börnin með í tónlistarmyndbandinu

Halldór Gunnar segir að alveg frá upphafi hafi teymið á bak við lagið talað um að þau séu að gera þetta verkefni fyrir og með börnunum sínum. Þau reyni að upplifa þetta með þeim og í gegnum þau.

„Því fannst okkur tilvalið að gera myndband þar sem börnin okkar voru með okkur. Við hittumst einn góðan sunnudag í Stúdíó Glæsibæ, buðum krökkunum upp á kaffitíma og svo settum við bara vélarnar í gang og tókum lagið nokkrum sinnum. Börnin fengu svo bara að gera það sem þeim leið vel með að gera. 

Þetta var dásamlegur dagur sem varð pínu kaótískur á tímabili en allir skemmtu sér vel og það skín í gegn í myndbandinu.“
Börnin eru stór hluti af þessu verkefni og voru því að sjálfsögðu með í tónlistarmyndbandinu.Aðsend

Myndbandið er eftir Sveinbjörn Hafsteinsson í Glæsibæ og honum til aðstoðar í tökum var Stefán B. Önundarson.

Fram koma:

Stefanía Svavarsdóttir og börn

Óskar Þormarsson og börn

Halldór Smárason og börn

Halldór Gunnar Pálsson og dóttir hans

Myndband: Sveinbjörn Hafsteinsson

Heiti lags: Hjartað mitt

Flytjandi: Stefanía Svavarsdóttir

Lag: Halldór Gunnar Pálsson

Texti: Magnús Þór Sigmundsson


Tengdar fréttir

Þetta eru lögin sem keppa í Söngva­keppninni 2022

Tíu lög hafa verið valin til þátttöku í Söngvakeppninni 2022. Fimm lög keppa á fyrra undanúrslitakvöldinu laugardaginn 26. febrúar og restin viku síðar í seinni undanúrslitum þann 5. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×