Körfubolti

LeBron James bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í nótt

Atli Arason skrifar
Kareem Abdul-Jabbar og LeBron James eiga gott pláss í sögubókum NBA-deildarinnar í körfubolta.
Kareem Abdul-Jabbar og LeBron James eiga gott pláss í sögubókum NBA-deildarinnar í körfubolta. Samsett/Getty

Golden State Warriors vann tveggja stiga sigur á heimavelli gegn LA Lakers, 117-115. Þrátt fyrir að klikka á tveimur vítum til að jafna leikinn þegar 2,4 sekúndur voru eftir þá fær LeBron James allar fyrirsagnirnar eftir leikinn þar sem hann bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í leiknum.

James gerði 26 stig í gær og er nú kominn með 44.157 stig samanlagt úr leikjum í deild og úrslitakeppni (36.526 í deild og 7.631 í úrslitakeppni). Samanlagt stigaskor Kareem Abdul-Jabbar stendur í 44.149 stigum (38.387 í deild og 5.762 í úrstlitakeppni).

Chicago Bulls vann Oklahoma City Thunders 106-101 þökk sé stigasöfnun DeMar DeRozan og Nikola Vucevic, sem fóru báðir yfir 30 stiga múrinn hjá Bulls.

Joel Embiid var með þrefalda tvennu er hann gerði 40 stig tók 14 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í tíu stiga sigri Philadelphia 76ers á Cleveland Cavaliers, 103-93.

Dejounte Murray var aðeins þremur fráköstum frá þrefaldri tvennu þegar San Antonio Spurs fóru til New Orleans Pelicans og sóttu 10 stiga sigur, 114-124.

Ja Morant var stigahæstur hjá Memphis Grizzlies með 26 stig þegar þeir unnu 7 stiga útsigur á Charlotte Hornets, 118-125.

Nikola Jokić stýrði sínum mönnum í Denver Nuggets til eins stigs sigurs á Toronto Raptors, 109-110. Jokić gerði alls 28 stig og varði loka skot Ogugua Anunoby á síðustu sekúndu leiksins til að trygga Nuggets sigur.

 

Luka Doncic heldur áfram að vera nær óstöðvandi í liði Dallas Maveriks. Doncic var einu stigi frá því að jafna met Anthony Davis yfir flest stig í einum leik í síðastu umferð en í nótt skoraði Doncic 45 stig en það dugði Dallas þó ekki til sigurs á heimavelli þar sem LA Clippers gerði einu stigi betur, 97-98.

Pheonix Suns styrktu stöðu sína á toppi vestur deildarinnar með 27 stiga sigri á Orlando Magic, 132-105, þar sem Devin Booker var stigahæstur með 26 stig fyrir Suns.

Sacramento Kings sóttu 13 stiga sigur í höfuðborginni gegn Washington Wizards, 110-123. De‘Aaron Fox gerði flest stig fyrir gestina, alls 26.

Miami Heat heldur toppsæti austurdeildar en Jimmy Butler og félagar í Heat unnu nauman 115-111 sigur á Brooklyn Nets á heimavelli, þrátt fyrir öflugan leik Kyrie Irving, sem var stigahæsti leikmaður vallarins er hann gerði 29 stig fyrir Brooklyn.

Pelicans 114-124 Spurs
Heat 115-111 Nets
Wizards 110-123 Kings
Suns 132-105 Magic
Maveriks 97-98 Clippers
Raptors 109-110 Nuggets
Hornets 128-125 Grizzlies
Pelicans 114-124 Spurs
Warriors 117-115 Lakers
Bulls 106-101 Thunder
76ers 103-93 Cavaliers
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×