Tveir handteknir vegna gruns um að tengjast hvarfi á 22 ára konu í Álaborg Atli Ísleifsson skrifar 9. febrúar 2022 13:06 Mia Skadhauge Stevn var úti að skemmta sér á Jomfru Ane Gade í Álaborg á laugardagskvöldið, en ekkert hefur spurst til hennar síðan klukkan sex síðasta sunnudagsmorgun. Lögreglan í Danmörku Lögregla í Danmörku hefur handtekið tvo 36 ára karlmenn vegna gruns um að tengjast hvarfinu á hinni 22 ára Mia Skadhauge Stevn. Ekkert hefur spurst til konunnar frá því að sást til hennar á öryggismyndavélum stíga upp í bíl í miðborg Álaborgar á Jótlandi snemma á sunnudagsmorgun, en málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku.
Lögregla á Norður-Jótlandi segir í tilkynningu að mennirnir hafi verið handteknir á tveimur stöðum, annars vegar í Østervrå og hins vegar Flauenskjold, klukkan 11:20 að staðartíma í morgun. Báða staði er að finna norður af Álaborg. Lögregla segir að upptökur úr öryggismyndavélum og ábendingar frá almenningi hafi komið henni á sporið. Mennirnir eru grunaður um að hafa banað konunni, en hún hefur enn ekki fundist. Á öðrum þeim stað þar sem mennirnir voru handteknir fannst einnig dökkur bíll líkt og sá sem sást á öryggismyndavélum og konan steig upp í á götunni Vesturbrú í Álaborg klukkan 6:09 að staðartíma á sunnudagsmorgun. Á myndum mátti sjá að Mia Skadhauge Stevn átti um tíu sekúndna spjall við þá sem í bílnum voru, áður en hún settist upp í bílinn. Vitað er að konan hafði verið að skemmta sér á Jomfru Ane Gade, gengið svo Borgergade til vesturs og svo Vesturbrú til suðurs þar sem hún settist upp í bílinn. DR segir frá málinu.
Danmörk Erlend sakamál Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Sjá meira