Viðskipti erlent

Pfizer græddi 4,6 billjónir í fyrra með sölu bólu­efnisins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Nettóhagnaður lyfjarisans Pfizers tvöfaldaðist á einu ári með tilkomu bóluefnisins gegn Covid-19. 
Nettóhagnaður lyfjarisans Pfizers tvöfaldaðist á einu ári með tilkomu bóluefnisins gegn Covid-19.  Getty/Drew Angerer

Lyfjarisinn Pfizer hagnaðist um tæplega 37 milljarða dala, eða um 4,6 billjónir íslenskra króna, einungis með sölu á bóluefni sínu gegn Covid-19 á síðasta ári. Með því er bóluefnið orðið ein arðbærasta vara sögunnar.

Líklegt er að hagnaður Pfizer verði enn meiri á þessu ári með sölu fyrirtækisins á Covid-19 lyfinu Paxlovid. Heildarhagnaður Pfizer nam um 81,3 milljörðum dala í fyrra og spekúlantar telja að hagnaðurnin muni hækka upp í á milli 98 milljarða til 102 milljarða dala á þessu ári. 

Gróðinn hefur vakið upp spurningar hjá ýmsum, meðal annars samtökunum Global Justice Now sem saka Pfizer um „faraldursbrask“. Samtökin sögðu í yfirlýsing í dag að hagnaður fyrirtækisins væri meiri en verg landsframleiðsla flestra ríkja og sökuðu Pfizer um að ofrukka heilbrigðiskerfi ríkja.

Nettóhagnaður tvöfaldaðist milli ára

Lyfjarisinn þróaði bóluefnið, sem ber heitið Comirnaty þó það sé lítið notað, með þýska lyfjafyrirtækinu BioNTech. Bóluefnið sjálft rakaði inn, eins og áður segir, 36,8 milljörðum Bandaríkjadala fyrir lyfjaframleiðandann á síðasta ári og á fjórða ársfjórðungi 2021 einum seldist bóluefnið fyrir 12,5 milljarða dala.  

Nettóhagnaður lyfjarisans árið 2021 voru um 22 milljarðar dala, sem er meira en tvöfalt meira en árið áður, þegar nettóhagnaður nam 9,1 milljarði. Fyrirtækið áætlar nú að það muni selja Comirnaty fyrir 32 milljarða dala á þessu ári og að Covid-lyfið Paxlovid muni raka inn 22 milljörðum til viðbótar. 

Paxlovid er nýtt á markaði og hefur nú fengið neyðarleyfi í fjörutíu ríkjum, þar á meðal Bandaríkjunum, Bretlandi og Suður-Kóreu. Lyfið, sem kemur í pilluformi, kemur í veg fyrir alvarleg veikindi af völdum Covid-19 í 90 prósentum tilfella meðal fullorðinna í áhættuhópi sé lyfið tekið stuttu eftir að fólk smitast af veirunni. 

Vilja að einkaleyfi á bóluefnum verði afnumið

Vestrænir lyfjarisar hafa að undanförnu verið harðlega gagnrýndir fyrir að gera ekki uppskriftirnar að bóluefnum gegn Covid aðgengilegar öllum, sem myndi gera það að verkum að lyfjafyrirtæki í þróunarríkjum gætu farið að framleiða bóluefnin sjálf, mun ódýrar. 

Moderna hefur þegar gert uppskrift að sínu bóluefni aðgengilega og lyfjaframleiðendur í Suður-Afríku eru þegar farnir að framleiða. 

„Þetta er ekkert annað en faraldursbrask af Pfizer, að græða fúlgur fjár á bóluefninu sem margir hafa ekki aðgang að. Pfizer er núna orðið ríkara en mörg ríki; það hefur grætt allt of mikla peninga af þessu neyðarástandi. Það er kominn tími til að afnema einkaleyfi á bóluefnum,“ saðgi Tim Bierley hjá Global Justice Now í yfirlýsingu í dag.

Pfizer svaraði þessari yfirlýsingu í dag og sagðist staðráðið í að gera sitt í því verkefni að tryggja jafnan aðgang að bóluefnum. Málið væri þó ekki eins einfalt og að deila „uppskriftinni“. Meira en 280 efni þyrfti að nota í framleiðslu Comirnaty og fyrirtækið væri þegar í miklu samstarfi við aðra framleiðendur. 


Tengdar fréttir

Hefja klínískar rannsóknir á nýju ómíkron bóluefni

Lyfjafyrirtækin Pfizer og BioNTech munu hefja klínískar rannsóknir á sérstöku bóluefni gegn ómíkron afbrigði kórónuveirunnar en fyrirtækin tilkynntu um þetta í dag. Önnur fyrirtæki vinna nú sömuleiðis að þróun bóluefna gegn ómíkron. 

Ákvæði um verðtryggingu í samningi Bandaríkjanna um Paxlovid

Bandarísk stjórnvöld munu greiða 530 dollara, um 68 þúsund krónur, fyrir hverja meðferð af Paxlovid, lyfjameðferð Pfizer gegn Covid-19. Verðið mun hins vegar lækka ef annað stórveldi nær hagstæðari samningum við lyfjarisann.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×