Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Botnslagur af bestu gerð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ljósleiðaradeildin

Eins og alla þriðjudaga eru tveir leikir á dagskrá í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO í kvöld.

Í fyrri viðureign kvöldsins mætast Fylkir og Kórdrengir í sannkölluðum botnbaráttuslag. Liðin sitja í neðstu tveimur sætum deildarinnar, en viðureignin hefst á slaginu 20:30.

Að þeirri viðureign lokinni mætast topplið Dusty og Ármann. Dusty hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu og ætla sér ekki að tapa öðrum.

Eins og áður segir hefjast leikir kvöldsins klukkan 20:30, en hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport eða einfaldlega á Twitch-síðu Rafíþróttasambands Íslands í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×