Lífið

„Hef enn ekki hitt þá manneskju sem er skemmtilegri í glasi en án þess“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Brynja Dan er ein þeirra sem tekur þátt í herferðinni en hún drekkur sjálf ekki áfengi. 
Brynja Dan er ein þeirra sem tekur þátt í herferðinni en hún drekkur sjálf ekki áfengi.  Hlín Arngríms

„Ég græddi svo ótrúlega margt þegar ég prófaði að vera án áfengis. Mér finnst líka bara gaman að skapa umræðuna um hóflega neyslu. Að fólk finni sinn takt með áfengi. Að það sé ekki undatekningin að fá sér ekki í glas,“ segir Sylvía Briem Friðjónsdóttir. 

Hún fór af stað með „Edrúar febrúar“ herferð á samfélagsmiðlum í gær sem á að hvetja Íslendinga til þess að sleppa neyslu áfengis í þessum mánuði. Sylvía er innflutningsaðili að drykknum Töst sem er orðinn vinsæll kostur hjá fólki sem velur áfengislausan lífsstíl. Sylvía hefur áður sagt frá því í viðtali á Lífinu á Vísi þegar hún drakk ekki áfengi óvart í eitt ár.

„Ég hef aldrei átt við vandamál tengt áfengi og þess vegna þótti skrítið að ég skildi fara þessa leið. Ég er samt ekkert að segja að ég sé hætt að drekka áfengi að eilífu heldur met hvert tilefni fyrir sig. Ég er ekki manneskja sem að lifi við boð eða bönn heldur vill fylgja innsæinu og hvað er best fyrir mig hverju sinni. Mér finnst bara svo hollt að skoða sjálfa sig og neysluna sína. Að það sé þessi heilbrigði millivegur, en það er oft erfitt að finna milliveginn þegar líf án áfengis er oft undantekningin. Þess vegna með þessu framtaki vildum við hvetja fólk í að prófa. Sjá hvort einhver finni heilsufarslegan mun og veita innblástur,“ útskýrir Sylvía.

„Ég græddi svo margt eftir að ég prófaði að velja mér óáfenga drykki eins og Töst. Heilsufarslegur ávinningur sem ég fann fyrir var betri svefn, meiri orka, meiri framtakssemi, minna stress, meiri tími og almennt betri lífsgæði.“

Margir þekktir einstaklingar tóku þátt í herferðinni sem mun birtast á Instagram síðu Töst. Á meðal þeirra sem hafa nú þegar rætt um sínar ástæður til að velja áfengislausan lífsstíl, alltaf eða tímabundið, eru Brynja Dan og Guðrún S. 

Það eru margir ávinningar af því að drekka minna eða ekkert áfengi! Það er til dæmis mikil tímaeyðsla að vera þunnur. Það er ekkert leiðinlegra en að eyða heilum degi í þynnku og vera með djammviskubit. Hlakka til að taka þátt í edrúar febrúar, segir Guðrún.Hlín Arngríms

„Það var erfitt að setja saman myndatöku í miðjum faraldri og því fleirri sem að hefðu viljað taka þárt en gátu,“ segir Sylvía um herferðina.  Myndirnar fyrir þessa herferð tók ljósmyndarinn Hlín Arngríms.

Undanfarið hafa margir opnað sig um ákvörðun sína að velja áfengislausan lífsstíl, til dæmis Tómas Guðbjartsson læknir, skemmtikrafturinn Eva Ruza og fleiri.  

„Ég drekk ekki því ég vil ekki missa stjórnina. Ég elska að vera hress alla daga eftir djamm og skemmti mér jafn vel án áfengis. Ég hef enn ekki hitt þá mannneskju sem er skemmtilegri í glasi en án þess,“ segir Brynja Dan við þetta tilefni.


Tengdar fréttir

Ætlaði að taka á­fengis­lausan janúar en entist út árið

„Fyrir ári síðan ákvað ég að prófa að hætta alveg að drekka áfengi. Þetta byrjaði sem veðmál við frúna, en fyrir ári voru vinkonur hennar flestar að hefja svokallaðan "Dry January". Þetta sagði hún mig aldrei geta - og ákvað ég því að taka hana á orðinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×