Tónlist

„Þegar maður sendir frá sér eitthvað sem maður er sáttur við er stór plús þegar öðrum líkar það“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarfólkið Ellen Kristjánsdóttir og John Grant syngja saman í laginu Veldu Stjörnu. Ellen fékk hugmyndina að laginu í París. 
Tónlistarfólkið Ellen Kristjánsdóttir og John Grant syngja saman í laginu Veldu Stjörnu. Ellen fékk hugmyndina að laginu í París. 

Ellen Kristjánsdóttir og John Grant sameinuðu krafta sína í laginu Veldu Stjörnu sem kom út 26. febrúar 2021 við góðar viðtökur.

Nú er komið að því að velja lag ársins fyrir Hlustendaverðlaunin 2022 sem fara fram 19. mars næstkomandi. Útvarpsstöðvarnar FM957, Bylgjan og X 977 standa saman að þessari verðlaunahátíð og í flokknum Lag Ársins koma sjö lög til greina. Lífið á Vísi setti sig í samband við tónlistarfólkið á bak við þessa hittara og fékk að heyra söguna á bak við lagið.

Næsta lag sem við kynnum til leiks er lagið Veldu Stjörnu sem Ellen Kristjánsdóttir samdi upphaflega með enskum texta og blaðamaður fékk hana til að svara nokkrum spurningum.

Hvernig kviknaði hugmyndin að laginu og hvaðan kom innblásturinn?

Ellen Kristjáns: Ég var að vinna í París á Kjarvalsstofu og lagið varð til þar en það hét fyrst History. Það fjallaði soldið um fortíðina, ástina og fjölskyldu. Bragi Valdimar bjó svo til íslenskan texta, sem er svo frábær.

Hvernig gekk ferlið og hvernig varð lagið að veruleika?

Ellen Kristjáns: Ég gerði fyrst demo gítar og söng með enskum texta. Fór síðan í stúdíó með frábæru tónlistarfólki sem tók upp grunninn að laginu. Síðan leið einhver tími og Bragi Valdimar bjó til textann. Ég fékk svo John (Grant) til að syngja sem var auðvitað of gott til að vera satt en hann hefur verið lengi góður fjölskyldu vinur. Eftir það liðu nokkrir covid mánuðir og ég kláraði sjálf að syngja. Eyþór Gunnarsson gerði allskonar ómissandi viðbætur og mixaði lagið ásamt Kidda Hjálmi, sem tók einnig upp. Og dætur mínar sungu dásamlegar raddir. Gaukur var á munnhörpu sem gerir lagið en betra.

Áttirðu von á því að lagið myndi ná svona vel til hlustenda?

Ellen Kristjáns: Maður á svo sem ekki von á einu eða neinu en þegar maður sendir frá sér eitthvað sem maður er sáttur við er það stór stór plús þegar öðrum líkar það. Ég var hissa, en afar ánægð.

Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin er nú í fullum gangi og geta hlustendur kosið það sem þeim þótti standa upp úr hér.


Tengdar fréttir

Sleppti þessu út í kosmósinn og vonaði það besta

Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson sendi frá sér lagið Segðu Mér í janúarmánuði ársins 2021. Lagið var með vinsælli lögum ársins en það er einnig að finna á nýútgefinni plötu Friðriks Dórs Dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×