Erlent

Dómari hafnaði samkomulaginu við feðgana

Samúel Karl Ólason skrifar
Travis McMichael lýsti yfir sekt sinn í gær en mun mögulega draga það til baka eftir að samkomulagi sem hann hafði gert við saksóknara var hafnað af dómara.
Travis McMichael lýsti yfir sekt sinn í gær en mun mögulega draga það til baka eftir að samkomulagi sem hann hafði gert við saksóknara var hafnað af dómara. AP/Stephen B. Morton

Dómari í Bandaríkjunum hafnaði í gærkvöldi því að gert yrði samkomulag við feðgana Greg og Travis McMichael. Samkomulagið hefði falið í sér að þeir hefðu komist hjá réttarhöldum um það hvort það hafi verið hatursglæpur þegar þeir myrtu Ahmaud Arbery.

Feðgarnir voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í nóvember fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára Arbery og skotið hann til bana árið 2020. Í síðasta mánuði varð svo ljóst að þeir myndu ekki eiga rétt á reynslulausn eftir þrjátíu ár.

Saksóknari bauð feðgunum samkomulag og sagði í gær að þeir hefðu samþykkt það. Samkomulagið fól í sér að þeir viðurkenndu að þeir hefðu elt, ógnað og myrt Arbery því hann væri svartur á hörund. Samkomulagið hefði falið í sér að þeir myndu sitja í fangelsi í minnst þrjátíu ár, hvort sem þeir ynnu áfrýjanir þeirra eða ekki. William Bryan, nágranni þeirra var einnig dæmdur vegna morðsins en hann mun hafa rétt á því að sækja um reynslulausn eftir þrjátíu ár. Allir þrír hafa sagst ætla að áfrýja dómnum.

Wanda Cooper-Jones, móðir Arbery, bað dómarann sem er með mál feðganna á sínum höndum um að hafna samkomulaginu og sagði það vera svik. Það hefði getað leitt til þess að þeir hefðu afplánað dóm sinn í alríkisfangelsi en ekki almennu ríkisfangelsi, þar sem aðstæður eru yfirleitt verri en í alríkisfangelsum.

Sjá einnig: Móðir Arbery segir samkomulag við morðfeðgana vera svik

Eftir að feðgarnir sáu Arbery hlaupa á hlaupum í hverfi þeirra í úthverfi Brunswick í Georgíu og eftir að Travis sá Arbery fara inn á svæði þar sem verið var að byggja hús í hverfinu, eltu þeir og Bryan hann um hverfið á pallbíl.

Þeir voru vopnaðir og eftir að hafa reynt að aka í veg fyrir Arbery og skipað honum að stoppa, sátu þeir fyrir honum. Travis miðaði þá haglabyssu að Arbery sem reyndi að hlaupa framhjá honum en Travis elti hann. Þegar þeir mættust veittist Arbery að Travis og reyndi að taka af honum haglabyssuna. Þá skaut Travis Arbery þrisvar sinnum.

Atvikið náðist á myndband sem Bryan tók.

AP fréttaveitan segir að deilur hafa komið upp í dómsal í gærkvöldi. Saksóknarar báðu Lisu Godbey Wood, dómara, um að veita samkomulaginu blessun sína. Fjölskylda Arbery mótmælti samkomulaginu harðlega.

Cooper-Jones sagði að ef feðgunum yrði veitt sú fangelsisvist sem þeir sóttust eftir, væri verið að gefa þeim síðasta tækifærið til að hrækja framan í hana, eins og hún orðaði það samkvæmt frétt AP.

Tara Lyons, saksóknari bað Wood um að samþykkja samkomulagið vegna þeirra sterku skilaboða sem það myndi senda. Travis McMichael hefði viðurkennt að Arbery væri enn á lífi ef hann hefði ekki verið svartur á hörund.

Hún sagðist skilja reiði fjölskyldu hans og vantrú þeirra á réttarkerfið en saksóknarar hefðu verið í sambandi við lögmenn fjölskyldunnar varðandi samkomulagið. Saksóknarar hefðu fengið þau skilaboð að fjölskyldan væri ekki mótfallin samkomulaginu.

Lögmaður Cooper-Jones sagði það þó ekki vera rétt. Fjölskyldan hefði áður hafnað samkomulagi sem hefði verið alveg eins og það sem feðgunum var boðið.

Wood sagðist hafna samkomulaginu á þeim grundvelli að það myndi binda hendur hennar varðandi dómsuppkvaðningu en hún sagði sömuleiðis að fjölskylda Arbery ætti að fá að tjá sig um refsingu feðganna við dómsuppkvaðninguna.

Travis McMichael lýsti yfir sekt sinni í gær og Greg ætlaði að gera það einnig en nú er óvíst hvort þeir muni hætta við í ljósi þess að samkomulaginu hafi verið hafnað.


Tengdar fréttir

Feðgarnir eiga ekki rétt á reynslu­lausn

Feðgarnir Greg og Travis McMichael voru í dag dæmdir til að verja ævi þeirra í fangelsi. Dómari úrskurðaði að þeir ættu ekki rétt á reynslulausn eftir að þeir voru dæmdir fyrir að myrða hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery árið 2020. Nágranni þeirra og samverkamaður, William Bryan, mun hins vegar geta sótt um reynslulausn eftir þrjátíu ár.

Líkti samstöðufundi við aftöku án dóms og laga

Kevin Gough, verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery, sagði samstöðufund sem haldin var fyrir utan dómshúsið í Brunswick í Georgíu vera álíka aftöku mannanna þriggja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×