Heilsa

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með ketilbjöllu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun frá 18 ára aldri.
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun frá 18 ára aldri. Hreyfum okkur saman

Í sjötta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með ketilbjöllu. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna með handlóði eða annari þyngd ef þú átt ekki ketilbjöllu á heimilinu.

Anna stingur upp á því að þeir sem eiga ekki bjöllu eða lóð noti fullan þvottabrúsa, bækur í poka eða annað til að redda sér. Þetta eru frábærar styrktaræfingar fyrir allan líkamann þar sem hver æfing er unnin í 45 sekúndur, engin hvíld á milli og tíminn flýgur áfram. 

Líkt og alltaf er æfingin gerð á dýnu. Hún er í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni, eða bætt við eldri heimaæfingu. 

Fyrstu fimm þættina af Hreyfum okkur saman má finna HÉR á Vísi.

Í þáttunum Hreyfum okkur saman fer Anna Eiríks yfir einfaldar æfingar sem hægt er að gera heimavið. Þættirnir koma út á mánudögum og fimmtudögum á Vísi og Stöð 2+.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með teygju

Í fimmta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með teygju. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna án teygjunnar ef þú átt ekki slíka á heimilinu.

Hreyfum okkur saman: Eftirbruni

Í fjórða þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu sem gefur góðan eftirbruna.

Hreyfum okkur saman: Styrkjandi jógaflæði

Í þriðja þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu sem hún kallar fitnessjóga. Um er að ræða einstaklega styrkjandi jógaflæði. 

Hreyfum okkur saman: Kviður og bak

Í öðrum þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu fyrir kvið og bak. Rólegar og góðar æfingar sem einblína á að styrkja kvið- og bakvöðva. 

Hreyfum okkur saman: Styrkur og liðleiki

Anna Eiríksdóttir fór af stað með nýja þætti hér á Lífinu á Vísi í dag. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á Stöð 2+ efnisveitunni. Um er að ræða heimaæfingar sem allir geta gert þar sem þeim hentar. Þættirnir koma út tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

„Gerir mér kleift að lifa lífinu mínu til hins ítrasta“

„Hreyfum okkur saman eru stuttir fimmtán mínútna æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Æfingarnar eru fjölbreyttar og er markmiðið með þessu þáttum klárlega að fá sem flesta landsmenn til að hugsa betur um heilsuna og hreyfa sig smá á hverjum degi,“ segir Anna Eiríksdóttir þáttastjórnandi æfingaþáttanna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×