Innherji

Jakob Valgeir og Helgi Magnússon fjárfesta í Skeljungi

Hörður Ægisson skrifar
Skeljungur rekur meðal annars 60 bensínstöðvar undir merkjum Orkunnar á Íslandi, apótekskeðjuna Lyfjaval og dagvöruverslanirnar EXTRA.
Skeljungur rekur meðal annars 60 bensínstöðvar undir merkjum Orkunnar á Íslandi, apótekskeðjuna Lyfjaval og dagvöruverslanirnar EXTRA. Orkan

Tvö félög á vegum Jakobs Valgeirs Flosasonar, útgerðarmanns og fjárfestis, bættust við hluthafahóp Skeljungs fyrr í þessum mánuði þegar þau keyptu samanlagt um 1,55 prósenta hlut sem skilar honum í hóp tíu stærstu eigenda fyrirtækisins.

Kaupin fóru fram á sama tíma og þegar lífeyrissjóðir voru að losa um stóran hluta bréfa sinna í Skeljungi.

Jakob Valgeir er meðal annars einn stærsti hluthafi Iceland Seafood með tíu prósenta hlut. Hlutur hans í Skeljungi er í dag metinn á tæplega 480 milljónir.

Þetta má lesa út úr uppfærðum lista yfir helstu hluthafa Skeljungs en eignarhaldsfélagið JV, sem er í eigu Jakobs Valgeirs, og útgerðarfyrirtækið Jakob Valgeir ehf. eiga saman um 30 milljónir hluta að nafnvirði í félaginu.

Ætla má að kaupverðið – gengi bréfa Skeljungs var í kringum 15 krónur á hlut þegar viðskiptin fóru fram á fyrri hluta þessa mánaðar – hafi numið samtals um 450 milljónum króna.

Auk þess að vera aðaleigandi og framkvæmdastjóri samnefnds útgerðarfyrirtækis, sem gerir út frá Bolungarvík, þá er Jakob Valgeir sömuleiðis stjórnarmaður í Iceland Seafood og einn stærsti hluthafi félagsins með yfir 10 prósenta hlut.

Þá hefur Helgi Magnússon, fjárfestir og aðaleigandi útgáfufélags Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar, einnig komið nýr inn í eigendahóp Skeljungs í gegnum eignarhaldsfélag sitt Hofgarðar. Félagið keypti um 9 milljónir hluta að nafnvirði, sem jafngildir tæplega 0,5 prósenta eignarhlut, sem gerir það að fjórtánda stærsta hluthafa Skeljungs. Markaðsvirði þess hlutar er í dag um 140 milljónir króna.

Í lok ágúst í fyrra seldi Helgi allan 6,2 prósenta hlut sinn í Bláa lóninu, þar sem hann hafði verið stjórnarformaður um árabil, fyrir liðlega 3,5 milljarða króna til fjárfestingafélagsins Stoða. Fyrir eignarhlutinn í Bláa lóninu, samkvæmt heimildum Innherja, fékk Helgi meðal annars greitt með hlutabréfum í Arion banka, Símanum og Stoðum.

Helgi Magnússon er aðaleigandi Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar.vísir/gva

Mikil viðskipti voru með bréf Skeljungs, sem er í dag með markaðsvirði upp tæplega 31 milljarð króna, í byrjun þessa árs þegar lífeyrisjóðirnir Gildi, Birta og Lífsverk seldu samtals um 13,6 prósenta hlut í félaginu fyrir um fjóra milljarða króna á tímabilinu 6. til 10. janúar. Samanlagður eignarhlutur íslenskra lífeyrissjóða í Skeljungi hefur farið ört minnkandi frá árinu 2020 – Frjálsi er í dag stærstur sjóðanna með 8,4 prósenta hlut – og nemur nú um 20 prósentum.

Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar Gildis, sagði við Innherja fyrr í þessum mánuði að miklar breytingar hjá Skeljungi og óljós vegferð félagsins hefðu verið á meðal þeirra þátta sem höfðu áhrif á ákvörðun sjóðsins að selja megnið af bréfum sínum en hlutur hans minnkaði úr 10,4 prósentum í tæplega 2 prósent.

„Við vorum sátt við að innleysa stóran hluta af okkar fjárfestingu í félaginu á þessum tímapunkti, töluverð hækkun sem orðið hefur á genginu á undanförnum mánuðum og söluverð okkar umtalsvert hærra en yfirtökutilboðið sem okkur stóð til boða fyrir liðlega ári síðan,“ útskýrði Davíð

Stærstu kaupendur að þeim bréfum sem lífeyrissjóðirnir seldu í ársbyrjun, eins og Innherji hefur áður fjallað um, voru bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, sem var áður stærsti hluthafi Arion banka um nokkurt skeið, og félagið GE Capital sem er í eigu Guðna Rafns Eiríkssonar, fjárfestis og eigenda Apple umboðsins á Íslandi. Taconic og Guðni Rafn keyptu hvor um sig rétt rúmlega fimm prósenta hlut í Skeljungi og var gengið í viðskiptunum 14,7 krónur á hlut.

Fjárfestingafélagið Strengur, sem hjónin Ingibjörg Pálmadóttur og Jón Ásgeir Jóhannesson og Sigurður Bollason fara meðal annars fyrir, er sem kunnugt er með rúmlega 50 prósenta hlut í Skeljungi eftir að hafa fjármagnað skuldsetta yfirtöku á félaginu í ársbyrjun 2021.

Verulegar breytingar hafa orðið á starfsemi Skeljungs að undanförnu þar sem eignir hafa verið seldar, reksturinn stokkaður upp með stofnun nýrra dótturfélaga og tilgangi félagsins breytt þannig að megintilgangur þess verði fjárfestingastarfsemi. Þá hafa stjórnendur Skeljungs hætt við fyrri áform sín um afskráningu heldur er nú horft til þess að starfrækja fjárfestingafélag sem verður skráð á hlutabréfamarkað.

Í lok síðasta árs gekk Skeljungur frá sölu á Magni til Sp/f Orkufélagsins. Endanlegt kaupverð nam 12,2 milljörðum króna en Skeljungur er skuldbundinn til að endurfjárfesta 2,8 milljörðum króna í Orkufélaginu gegn því að eignast ríflega 48 prósenta hlut. Þá skrifaði Skeljungur undir viljayfirlýsingu um sölu fasteigna fyrir 8,8 milljarða króna til fasteignaþróunarfélagsins Kaldalóns. Þeir fjárfestar sem standa að baki Strengi eru sömuleiðis ráðandi hluthafar í Kaldalóni.

Hlutabréfaverð Skeljungs stóð í 15,9 krónum á hlut við lokun markaða í dag og hefur hækkað um 60 prósent á undanförnum tólf mánuðum.


Tengdar fréttir

Fjármálastjóri Eskju og eigandi ÞG Verks taka sæti í stjórn Magns

Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri og eigandi verktakafélagsins ÞG Verks, hafa tekið sæti í stjórn færeyska félagsins P/F Magn. Þetta kemur fram í frétt færeyska miðilsins KVF.

Fjárfestar veðji á mikinn söluhagnað hjá Skeljungi

Verðmatsgengi Skeljungs, samkvæmt greiningu Jakobsson Capital, hljóðar upp á 11 krónur á hlut en markaðsgengi smásölufélagsins er í dag 13,9 krónur, eða 26 prósentum hærra. Í verðmatinu er þó lögð áhersla á að verðmatsgengið segi aðeins hálfa söguna í ljósi þess að Skeljungur er í miklum breytingafasa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×