Skoðun

Covid skóli

Sara Oskarsson skrifar

Skólarnir eiga að byrja aftur eftir tvo daga.

Smitölur síðustu vikna hafa náð hæðum sem við höfum aldrei séð frá upphafi faraldursins. Spítalannlagnir hafa þakkanlega ekki verið nálægt því sem að óttast var í fyrstu og það er ljóst að bólusetningar draga stórkostlega úr líkunum á alvarlegum veikindum vegna Covid-19 veirunnar. Það er yndislegt út af fyrir sig.

Covid heilbrigðisstofnun

Hins vegar er að sama skapi óþolandi að á tveimur árum hafi stjórnvöld ekki enn haft glóru né lágmarksrænu til þess að koma á laggirnar sér­stakri Covid-19 heil­brigðis­stofn­un eins og þau hefðu augljóslega átt að gera strax í upphafi faraldursins. Sú staðreynd lýsir í hnotskurn þeirri krónísku vanhæfni og þeim pínlega skorti á langtímahugsun sem er við líði í íslenskum stjórnmálum. Það er jú gömul saga og ný..

Við sjáum nú dag frá degi fordæmalausar covid-smittölur og þó að Ómíkrón afbrigðið sé þakkanlega minna aggresívt en undanfari þess, Delta afbrigðið, virðist heilbrigðiskerfi velferðarríkisins Íslands samt einungis mara í hálfu kafi eins og staðan er í dag.

Velferðarríkið

Vegna áratuga aumingjaskapar stjórnvalda og fullkomnum skorti á þeim grunnskilningi að öflugt og vel fjármagnað heilbrigðiskerfi er lykilinn að farsælu samfélagi og hagkerfi, stöndum við nú frammi fyrir því að þjóðfélagið muni líklega lamast á komandi vikum að algjörlega óþörfu.

Í síðasta minnisblaði sínu ráðlagði sóttvarnarlæknir Þórólfur Guðnason stjórnvöldum að fresta upphafi skólastarfs á árinu sem var að ganga í garð. Það var ekki var orðið við því. Að sjálfsögðu þurfa stjórnvöld heildstætt að vega og meta ávinning sóttvarnaaðgerða og áhrif þeirra á samfélagið og á ólíka hagsmuni, en ég fæ illa séð hverra hagsmuna væru borgið með því að skólarnir komi saman eftir tæpa tvo sólarhringa.

Lamað þjóðfélag

Ef að núverandi ástand (það er jólafrí í skólum) er eitthvað til að miða við er ekki von á góðu í næstu viku. Rétt fyrir jólafrí skólanna byrjuðu smittölurnar að rjúka upp sem varð til þess að langflestir skólarnir afboðuðu til að mynda jólaskemmtanir sínar. Ef að fer sem horfir munu smittölurnar vafalítið stórhækka í næstu viku og afleiðingar þeirra verða þá auðvitað sóttkví og einangrun tugþúsunda Íslendinga. Þjóðfélagið yrði varla starfhæft.

Lyfjastofnun Evrópu heimilaði nýlega að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði bólusett gegn kórónuveirunni með bóluefni frá Pfizer. Foreldrum á Íslandi mun fljótlega gefast kostur á því að bólusetja yngri börn sín við kórónuveirunni. Vafalaust og vonandi munu margir þiggja það boð og draga um leið úr krafti og framgangi veirunnar. En það stendur ekki til að gera þetta fyrr en undir lok þessa mánaðar og það er einmitt þessi yngsti hópur sem heldur uppi stórum hluta núverandi smittalna.

Varðbergi

Í gær birtist viðtal við Víði Reynisson yfirlögregluþjón almannvarna þar sem sagði að landsmenn þyrftu að vera “mjög á varð­bergi næstu dagana”. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir að enn fleiri greinist smitaðir innanlands á næstu dögum eftir hátíðirnar og að landsmenn þurfi að vera á varðbergi svo að spítalinn ráði við álagið. Ríkisstjórnin hefur ekkert brugðist við þessum yfirlýsingum á neinn hátt og enn stendur til að skólarnir komi saman á þriðjudaginn.

Nýr heilbrigðisráðherra er enn að koma sér fyrir í embætti og hefur mögulega aðeins aðrar áherslur en forveri sinn, auk þess sem að hann fær í skautið allt annan veruleika en fyrrverandi heilbrigðisráðherra: mun kraftminni veiru og margbólusetta þjóð. Hins vegar er frekar augljóst hvað gerist ef að skólarnir koma saman ekki á morgun heldur hinn. Smittölurnar munu fara upp úr öllu valdi, tilheyrandi sóttkví og einangrun mun leika þjóðfélagið grátt - en sá óhugsandi möguleiki að heilbrigðiskerfið bugist hræðir mest.

Skólahald

Undirituð leggur til og mælir með að skólahaldi sé frestað fram yfir bólusetningu yngsta hópsins. Það kæmi í veg fyrir þá smitsprengju sem stefnir í, auk þess sem örmagna og úrvinda heilbrigðisstarfsfólk fengi aðeins að draga andann á milli tarna.

Höfundur er fyrrverandi varaþingmaður og listakona.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×