Lakers hefur nú tapað fimm leikjum í röð. Síðasti leikurinn sem Anthony Davis spilaði var í 18 stiga tapi gegn Minnesota Timberwolves þar sem Davis spilaði aðeins 20 mínútur, lokatölur þá 110-92. Sá leikur var upphafið á fimm leikja taphrinu sem er ekki enn lokið. Það sem meira er, varnarleikur liðsins hefur verið gjörsamlega hörmulegur í hverjum einasta leik.
Að einhverju leyti má eflaust skrifa það á miklar breytingar milli leikja en flest lið deildarinnar eru að glíma við manneklu sökum Covid-19 og mikið af leikmönnum að taka skóna af hillunni eða stíga upp úr G-League til að spila mínútur hér og þar.
In the four games since Anthony Davis went down, the Lakers are allowing 116.9 points per 100 possessions, which would be the worst defense in the league for the full season.
— Harrison Faigen (@hmfaigen) December 26, 2021
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að ef síðustu fjórir leikir Lakers-liðsins eru yfirfærðir á tímabilið í heild þá væri liðið með lélegustu vörn deildarinnar.
Liðið hefur minnst fengið á sig 108 stig í síðustu fjórum leikjum en mest 138, og það gegn slöku liði San Antonio Spurs.
Lið Franks Vogel, þjálfara Lakers, hafa alla tíð verið þekkt fyrir góðan varnarleik. Hans helsta verkefni fyrir yfirstandandi leiktíð var að finna rétta blöndu varnarlega þar sem Lakers liðið er komið til ára sinna. Meðalaldurinn er hár og án Davis er vörn liðsins líkt og gatasigti.

Eftir að fá á sig 115 stig gegn Chicago Bulls fékk liðið á sig 108 gegn Phoenix Suns. Í kjölfarið kom hörmungin geng Spurs áður en Brooklyn Nets (sem var án Kevin Durant, LeMarcus Aldridge og fleiri leikmanna) setti 122 stig í gær.
Alls hefur Los Angeles Lakers fengið á sig 483 stig í síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið hefur skorað 110 stig eða meira í þremur af þessum fjórum leikjum en það er ljóst að varnarleikurinn er að kosta liðið.
Davis verður frá í mánuð hið minnsta og stóra spurningin er hversu langt Lakers fellur niður töfluna án hans. Liðið er sem stendur í 7. sæti Vesturdeildar með 16 sigra og 18 töp.

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.