Jólahafurinn í Gävle varð eldi að bráð í nótt Atli Ísleifsson skrifar 17. desember 2021 08:51 Alls hefur hafurinn verið eyðilagður í 38 skipti frá árinu 1966. Hann brann til ösku í nótt. Gävlebocken/Visit Gävle Jólageitin í sænska bænum Gävle brann til ösku í nótt. Karlmaður upp úr fertugu hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn.
Stærðarinnar Jólageit, eða Jólahafur, hefur verið settur upp á Hallartorginu í Gävle á hverju ári á aðventu, þar sem hún hefur staðið hálslöng og greindarleg. Oftar en ekki hefur hún þó orðið eldi eða ódæðisverkum skemmdarvarga að bráð. Segja má að Jólahafurinn í Gävle sé fyrirmynd IKEA-geitarinnar sem hefur staðið tignarleg fyrir utan verslun IKEA í Kauptúni vikurnar fyrir jól síðustu árin. Lögreglu í Gävle barst tilkynning um eldinn á fjórða tímanum að staðartíma í nótt en þá var geitin þegar svo gott sem þegar að engu orðin. Jólahafri var fyrst komið upp í Gävle fyrir jólin 1966, en líkt og áður sagði hefur hann oftast verið brenndur eða eyðilagður á annan hátt, til að mynda með því að ekið hafi verið á hann. Alls hefur hafurinn verið eyðilagður í 38 skipti frá árinu 1966 og má segja að hann hafi fyrir vikið orðið heimfrægur. Á árunum 2017 til 2020 fékk Jólahafurinn þó að standa tignarlegur alla aðventuna, enda höfðu bæjaryfirvöld þá gripið til ýmissa aðgerða til að verja hafrinum frá illu.
Svíþjóð Jól Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira