Handbolti

Gum­mers­bach með fullt hús stiga | Elín Jóna fór mikinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hákon Daði var frábær í kvöld.
Hákon Daði var frábær í kvöld. Getty Images

Íslendingarnir í þýsku B-deildinni í handbolta létu heldur betur finna fyrir sér í kvöld. Hákon Daði Styrmisson átti frábæran leik í 32-24 sigri Gummersbach á Grosswallstadt og þá var Anton Rúnarsson öflugur í 31-23 sigri Emsdetten á Ferndord.

Þá varði Elín Jóna Þorsteinsdóttir eins og berserkur í sigri Ringkøbing í dönsku úrvalsdeild kvenna. Á sama tíma er GOG, lið Viktors Gísla Hallgrímsson, með fullt hús stiga á toppnum karla megin.

Gott gengi Gummersbach heldur áfram en liðið pakkaði Grosswallstadt saman á útivelli í kvöld. Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar voru 18-12 yfir í hálfleik og fór það svo að leiknum lauk með átta marka sigri þeirra, lokatölur 32-24.

Hákon Daði fór á kostum og skoraði 10 mörk ásamt því að gefa tvær stoðsendingar. Elliði Snær Vignisson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar.

Gummersbach er með fjóra sigra í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins. Bæði Eintracht Hagen og Essen hafa einnig unnið alla fjóra leiki sína og stefnir í hörkumót.

Emsdetten var óvænt fjórum mörkum undir í hálfleik, staðan þá 9-13 en í þeim síðari var allt annað upp á teningnum. Heimamenn léku frábæran handbolta og unnu á endanum sannfærandi átta marka sigur, lokatölur 31-23.

Anton Rúnarsson skoraði fjögur mörk og lagði upp önnur fjögur til viðbótar í liði Emsdetten sem er í 6. sæti með fimm stig að loknum fjórum leikjum.

Elín Jóna varði 10 skot í sjö marka sigri Ringkøbing á Holstebro, lokatölur 30-23. Var þetta annar sigur Ringkøbing á tímabilinu og liðið nú með fjögur stig í 11. sæti að loknum fjórum leikjum.

Elín Jóna Þorsteinsdóttir með verðlaunin sín sem leikmaður ársins á síðustu leiktíð.mynd/@elinjona_96

Að lokum unnu Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í GOG fimm marka sigur á Fhk Elite, lokatölur 34-29. GOG er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Ekki kemur fram hversu mikið Viktor Gísli spilaði í leik dagsins né hversu mörg skot hann varði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×