Myndskeið af hjónunum Justin og Hailey Bieber hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlinum TikTok í vikunni. Um er að ræða myndband þar sem hjónin sjást stilla sér upp fyrir myndavélarnar á rauða dreglinum á Met Gala góðgerðarviðburðinum.
Á myndbandinu sést Justin leggja hönd sína á maga Hailey. Í kjölfarið má sjá Hailey taka hönd hans í burtu og hafa glöggir aðdáendur lesið af vörum hennar orðin „don't make it so obvious“ eða „ekki gera þetta svona augljóst“.

„Ég meina TikTok fann út að Kylie væri ólétt út frá nöglunum á henni, þannig þetta gæti alveg eins verið rétt sko,“ segir Birta Líf.
Hún tekur þó fram að seinna þetta sama kvöld hafi Hailey sést halda á tequila flösku en segir að það gæti einfaldlega hafa verið blekking.
„Hún hélt það fullkomlega á henni að miðinn sneri akkúrat fram þegar hún labbaði fram hjá ljósmyndurunum. Þannig þetta var rosalega út hugsað.“
Í Brennslutei vikunnar sagði Birta Líf einnig frá því að söngkonan Adele væri komin með nýjan kærasta. Hún ræðir Emmy verðlaunahátíðina sem haldin var í vikunni og vinsældir hnefaleika um þessar mundir.

Stærsta „te“ vikunnar snýr þó að raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Umboðsmaður sem kallar sig Wack 100 greindi frá því í hlaðvarpsviðtali í vikunni að hann ætti annað kynlífsmyndband af Kardashian og hennar fyrrverandi, tónlistarmanninum Ray J.
„Það var náttúrlega eitt sem kom út en hann segist eiga annað sem kom aldrei út. Hann er einmitt fyrrverandi umboðsmaður Ray J,“ útskýrir Birta.
Umboðsmaður þessi segist þó ekki ætla sér að leka myndbandinu en vill þó láta fyrrverandi eiginmann hennar, Kanye West hafa það.
Hægt er að hlusta á Brennslute vikunnar með Birtu Líf í heild sinni hér að neðan.