Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild kvenna 2021-22: Hafdís hreyfir nálina í átt að Safamýrinni (1.-3. sæti)

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valur og Fram eru líklegust til að koma í veg fyrir að KA/Þór verji Íslandsmeistaratitilinn.
Valur og Fram eru líklegust til að koma í veg fyrir að KA/Þór verji Íslandsmeistaratitilinn. vísir/hulda margrét

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild kvenna en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum í dag, laugardaginn 18. september.

Í fyrradag fórum við yfir liðin sem verða í botnbaráttunni,í gær liðin sem verða um miðja deild og nú er komið að toppbaráttunni.

KA/Þór kom öllum á óvart og vann alla titlana sem í boði voru á síðasta tímabili. Fram endaði í 2. sæti Olís-deildarinnar en tapaði fyrir Val í undanúrslitunum. KA/Þór vann svo Val í úrslitaeinvíginu, 2-0, og tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.

KA/Þór mætir til leiks með nánast sama lið og á síðasta tímabili. Meiri breytingar hafa orðið á Val og Fram. Valur fékk meðal annars Hildigunni Einarsdóttur heim úr atvinnumennsku og Hafdís Renötudóttur er komin aftur í Fram. Hún á eftir að reynast Framkonum vel og er helsta ástæða þess að við spáum þeim deildarmeistaratitlinum.

Valur í 3. sæti: Áfram í fremstu röð

Thea Imani Sturludóttir kom til Vals í byrjun síðasta árs.vísir/hulda margrét

Gengi Vals í deildarkeppninni á síðasta tímabili var misjafnt en liðið endaði í 3. sætinu. Í úrslitakeppninni gáfu Valskonur í, slógu Hauka og Framkonur út en strönduðu á Norðankonum í úrslitarimmunni.

Helsta vandamál Vals á síðasta tímabili var línustaðan en meiðsli og barneignir skildu Val eiginlega eftir án línumanns. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir tók skóna enn einn ganginn af hillunni og var Val ómetanleg en er nú endanlega hætt, allavega þar til annað kemur í ljós. Til að leysa línustöðuna fékk Valur Hildigunni Einarsdóttur sem er komin aftur í Olís-deildina eftir mörg ár í atvinnumennsku erlendis.

Morgan Marie Þorkelsdóttir og Íris Ásta Pétursdóttir eru byrjaðar aftur og þá fékk Valur markvörðinn Söru Sif Helgadóttur frá Fram. Hún myndar markvarðateymi Valskvenna ásamt Sögu Sif Gísladóttur sem átti fínt tímabil í fyrra.

Thea Imani Sturludóttir verður núna með frá byrjun og Þórey Anna Ásgeirsdóttir snýr hugsanlega aftur þegar líða tekur á tímabilið.

Valur byggir áfram á sterkum varnarleik og góðri markvörslu. En ef Valskonur ætla að verða deildarmeistarar þurfa þær að sækja fleiri stig á útivelli en á síðasta tímabili. Þá unnu þær aðeins tvo af sjö útileikjum sínum.

Gengi Vals undanfarinn áratug

  • 2020-21: 3. sæti+úrslit
  • 2019-20: 2. sæti
  • 2018-19: Deildarmeistari+Íslandsmeistari+bikarúrslit
  • 2017-18: Deildarmeistari+úrslit
  • 2016-17: 6. sæti
  • 2015-16: 5. sæti+átta liða úrslit
  • 2014-15: 6. sæti+átta liða úrslit+bikarúrslit
  • 2013-14: 2. sæti+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2012-13: Deildarmeistari+undanúrslit+bikarmeistari
  • 2011-12: Deildarmeistari+Íslandsmeistari+bikarmeistari
Auður Ester Gestsdóttir er aðalhornamaður Vals hægra megin.vísir/Hulda Margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 24,7 (2. sæti)
  • Mörk á sig - 20,6 (1. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 34% (3. sæti)
  • Skotnýting - 55,5% (3. sæti)
  • Tapaðir boltar - 9,1 (1. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Íris Ásta Pétursdóttir byrjuð aftur
  • Sara Sif Helgadóttir frá Fram
  • Hildigunnur Einarsdóttir frá Leverkusen
  • Morgan Marie Þorkelsdóttir byrjuð aftur

Farnar:

  • Ásdís Þóra Ágústsdóttir til Lugi
  • Margrét Einarsdóttir til Hauka

Lykilmaðurinn

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Lovísa Thompson verið í hópi bestu leikmanna Olís-deildarinnar um langt árabil.vísir/hulda margrét

Lovísa Thompson hefur verið stjarna í Olís-deildinni frá því hún var í grunnskóla og það breytist ekkert í vetur. Hún var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili með níutíu mörk, þar af aðeins sjö úr vítaköstum. Lovísa er frábær maður gegn manni, bæði í vörn og sókn, og sennilega besti leikmaður sem við höfum átt í þeim þætti leiksins. 

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sólveig Lára Kjærnested fer yfir möguleika Vals.

Klippa: Valur 3. sæti

KA/Þór í 2. sæti: Nýr veruleiki eftir draumatímabil

KA/Þór fagnar Íslandsmeistaratitlinum ásamt stuðningsfólki sínu.vísir/Hulda Margrét

Síðasta tímabil var draumi líkast hjá KA/Þór. Liðið fékk vissulega Rut Jónsdóttur og sendi skilaboð með því að vinna öruggan sigur á Fram í Meistarakeppninni. En ekki einu bjartsýnustu Akureyringar hefðu búist við því að liðið yrði bæði deildar- og Íslandsmeistari.

KA/Þór sýndi mikinn stöðugleika og á úrslitastundu draup varla af leikmönnum liðsins þrátt fyrir að flestir þeirra væru í fyrsta sinn á stærsta sviðinu. Akureyringar töpuðu aðeins tveimur leikjum í deild og úrslitakeppninni og voru einfaldlega langbestir. Nýjar stjörnur eins og Aldís Ásta Heimisdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir urðu til og þær verða væntanlega enn betri á þessu tímabili og banka fast á landsliðsdyrnar.

Nánast engar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum í sumar. Varamarkvörðurinn Ólöf Maren Bjarnadóttir er farin en KA/Þór fékk færeysku skyttuna Sofie Søberg Larsen og Unni Ómarsdóttir sem snýr aftur til Akureyrar eftir nokkuð langa útlegð. Hún styrkir KA/Þór í vinstra horninu þar sem liðið er með minnsta breidd af öllum stöðum.

Eftir velgengni síðasta tímabils blasir nýr veruleiki við fyrir norðan. Núna er KA/Þór allt í einu liðið sem öll hin vilja vinna. Og eins og sást í Meistarakeppninni hefur Fram sótt á frá síðasta tímabili. En Akureyringar vonast eflaust til að Meistaraleikurinn í ár hafi ekki sama forspárgildi og í fyrra. 

Gengi KA/Þórs undanfarinn áratug

  • 2020-21: Deildarmeistari+Íslandsmeistari
  • 2019-20: 6. sæti+bikarúrslit
  • 2018-19: 5. sæti
  • 2017-18: B-deild (1. sæti)
  • 2016-17: B-deild (2. sæti)
  • 2015-16: 11. sæti
  • 2014-15: 11. sæti
  • 2013-14: 11. sæti
  • 2012-13: Ekki með
  • 2011-12: 7. sæti
Ásdís Guðmundsdóttir og Aldís Ásta Heimisdóttir eru tveir af mikilvægustu leikmönnum KA/Þórs.vísir/Hulda Margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 23,5 (4. sæti)
  • Mörk á sig - 20,6 (1. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 35,8% (2. sæti)
  • Skotnýting - 59,4% (2. sæti)
  • Tapaðir boltar - 10,1 (2. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Unnur Ómarsdóttir frá Fram
  • Sofie Søberg Larsen frá H71

Farnar:

  • Ólöf Maren Bjarnadóttir til Hauka

Lykilmaðurinn

Eftir þrettán ár í atvinnumennsku sneri Rut Jónsdóttir heim fyrir síðasta tímabil.vísir/hulda margrét

Rut Jónsdóttir átti eftirminnilega endurkomu í deildina hér heima. Hún breytti fínu liði í frábært og var verðskuldað valin besti leikmaður deildarinnar. Sjaldan hefur einn leikmaður haft jafn mikil áhrif á eitt lið í íslenskri íþróttasögu og Rut á KA/Þór á síðasta tímabili. Rut var fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar og með rúmlega sjötíu prósent skotnýtingu. Þá gaf hún flestar stoðsendingar allra leikmanna deildarinnar.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sigurlaug Rúnarsdóttir fer yfir möguleika KA/Þórs.

Klippa: KA/Þór 2. sæti

Fram í 1. sæti: Líklegastar til afreka

Fram varð síðast Íslandsmeistari 2018.vísir/Hulda Margrét

Fram var með langbesta lið landsins tímabilið 2019-20, varð deildar- og bikarmeistari en kórónuveirufaraldurinn kom í veg fyrir að liðið yrði Íslandsmeistari. En nokkuð kvarnaðist úr leikmannahópnum á síðasta tímabili vegna barneigna og meiðsla og 2. sætið og undanúrslit urðu niðurstaðan.

Núna verður Fram með Karenu Knútsdóttur, Þóreyju Rósu Stefánsdóttur og Stellu Sigurðardóttur frá byrjun, Perla Ruth Albertsdóttir snýr væntanlega aftur og Hafdís Renötudóttir er komin aftur í markið. Hún var með bestu hlutfallsmarkvörslu allra tímabilið 2019-20 en á síðasta tímabili var Fram með fjórðu bestu hlutfallsvörsluna. Endurkoma hennar styrkir Safamýrarliðið því gríðarlega, að því gefnu að höfuðmeiðslin sem hún hefur glímt við haldi henni ekki frá keppni.

Steinunn Björnsdóttir er að jafna sig eftir krossbandaslit en Fram fékk sænskan línumann, Emmu Olsson, til að fylla hennar skarð. Og miðað við frammistöðu hennar í leiknum gegn KA/Þór í Meistarakeppninni er hún mikill liðsstyrkur.

Stefán Arnarson er á sínu áttunda tímabili með Fram og á þeim tíma hefur liðið alltaf verið í baráttu um þá titla sem í boði eru. Og það breytist ekkert í vetur. Fram er með frábært byrjunarlið stútfullt af reynslu og hæfileikum. Breiddin er ekkert sérstaklega mikil en koma Hafdísar gerir Frammara líklegasta til afreka.

Gengi Fram undanfarinn áratug

  • 2020-21: 2. sæti+undanúrslit
  • 2019-20: Deildarmeistari+bikarmeistari
  • 2018-19: 2. sæti+úrslit
  • 2017-18: 2. sæti+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2016-17: 2. sæti+Íslandsmeistari+bikarúrslit
  • 2015-16: 3. sæti+undanúrslit
  • 2014-15: 2. sæti+undanúrslit
  • 2013-14: 4. sæti+átta liða úrslit
  • 2012-13: 2. sæti+Íslandsmeistari+bikarúrslit
  • 2011-12: 2. sæti+úrslit
Stella Sigurðardóttir tók fram skóna um mitt síðasta tímabil og verður núna með frá byrjun.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 27,5 (1. sæti)
  • Mörk á sig - 22,2 (4. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 33,1% (4. sæti)
  • Skotnýting - 60,5% (1. sæti)
  • Tapaðir boltar - 11,2 (4. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Emma Olsson frá Önnereds
  • Hafdís Renötudóttir frá Lugi
  • Tinna Valgerður Gísladóttir frá Gróttu
  • Írena Björk Ómarsdóttir frá FH

Farnar:

  • Unnur Ómarsdóttir til KA/Þórs 
  • Katrín Ósk Magnúsdóttir til Danmerkur
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir til Stjörnunnar
  • Sara Sif Helgadóttir til Vals

Lykilmaðurinn

Karen Knútsdóttir er Framliðinu afar mikilvæg.vísir/hulda margrét

Karen Knútsdóttir eignaðist sitt fyrsta barn fyrir ári en missti samt aðeins af þremur deildarleikjum á síðasta tímabili vegna kórónuveirufaraldursins. Karen hefur spilað betur en hún gerði í fyrra en miðað við Meistaraleikinn gegn KA/Þór er hún að nálgast fyrri styrk. Þar skoraði hún sjö mörk og gaf fimm stoðsendingar. Karen verður ef allt er eðlilegt einn allra besti leikmaður deildarinnar í vetur.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sólveig Lára Kjærnested fer yfir möguleika Fram.

Klippa: Fram 1. sæti

Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×