Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild kvenna 2021-22: Eitt eftirsóknarvert sæti í boði (6.-8. sæti)

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Afturelding, HK og Haukar verða væntanlega í neðsta hluta Olís-deildar kvenna.
Afturelding, HK og Haukar verða væntanlega í neðsta hluta Olís-deildar kvenna. vísir/daníel/hulda margrét

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild kvenna en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum laugardaginn 18. september.

Fyrst tökum við fyrir liðin sem verða í botnbaráttunni en um leið í baráttunni um að komast í úrslitakeppnina. Neðsta liðið fellur, liðið í sjöunda og næstneðsta sæti fer í umspil um að halda sér uppi en 6. sætið gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Afturelding endurheimti sæti sitt í Olís-deildinni á síðasta tímabili en hætt er við að veturinn verði erfiður í Mosfellsbænum.

Haukum var spáð slæmu gengi fyrir síðasta tímabili en spiluðu vel úr sínum spilum og komust í úrslitakeppnina. HK missti hins vegar að sæti í úrslitakeppninni og þurfti að fara í umspil við Gróttu. HK-ingar hafa lítinn áhuga á að endurtaka þann leik.

Afturelding í 8. sæti: Langur vetur í Mosfellsbænum

Afturelding er komin aftur í Olís-deildina eftir eins árs fjarveru.afturelding

Afturelding féll úr Olís-deildinni tímabilið 2019-20 en komst aftur upp í fyrstu tilraun. Mosfellingar unnu reyndar ekki Grill 66 deildina en markmiðið að endurheimta Olís-deildarsætið náðist.

Síðast þegar Afturelding var í Olís-deildinni vann liðið bara einn leik af nítján og fékk aðeins þrjú stig. Hætt er við að árangurinn í vetur verði litlu betri.

Mosfellingar virðast því miður vera með langslakasta lið deildarinnar og nær ómögulegt er að sjá þá halda sér uppi. Afturelding sótti nokkra leikmenn fyrir tímabilið en missti skyttuna öflugu, Önumariu Gugic. Mikið mun mæða á markverðinum Evu Dís Sigurðardóttur og leikstjórnandanum Katrínu Helgu Davíðsdóttur, markahæsta leikmanni Aftureldingar á síðasta tímabili.

Guðmundur Helgi Pálsson er þjálfari Aftureldingar en hann tók við liðinu af Haraldi Þorvarðarsyni um mitt tímabilið 2019-20. 

Gengi Aftureldingar undanfarinn áratug

  • 2020-21: B-deild (2. sæti)
  • 2019-20: 8. sæti
  • 2018-19: B-deild (1. sæti)
  • 2017-18: B-deild (9. sæti)
  • 2016-17: B-deild (6. sæti)
  • 2015-16: 13. sæti
  • 2014-15: Ekki með
  • 2013-14: 12. sæti
  • 2012-13: 10. sæti
  • 2011-12: Ekki með
Telma Rut Frímannsdóttir er ekki bara frambærileg handboltakona heldur einnig ein fremsta karatekona landsins.vísir/daníel

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Sylvía Blöndal frá FH
  • Ólöf Marín Hlynsdóttir frá ÍR
  • Lovísa Líf Helenudóttir frá HK
  • Ragna Sif Úlfarsdóttir frá Noregi
  • Katrín Hallgrímsdóttir frá Víkingi
  • Elín Krista Sigurðardóttir frá Selfossi

Farnar:

  • Anamaria Gugic til Ítalíu
  • Birna Lára Guðmundsdóttir hætt
  • Andra Ósk Þorkelsdóttir hætt
  • Margrét Ýr Björnsdóttir til HK
  • Ásdís Birta Alexandersdóttir

Lykilmaðurinn

Eva Dís Sigurðardóttir er í algjöru lykilhlutverki hjá Aftureldingu.afturelding

Eva Dís Sigurðardóttir er einn efnilegasti markvörður landsins og er kominn á radarinn hjá landsliðsþjálfaranum Arnari Péturssyni. Hann valdi hana í landsliðið síðasta vetur þrátt fyrir að hún væri að spila í Grill 66 deildinni. Mikið mun mæða á Evu Dís í vetur og hún ræður miklu um það hvernig Aftureldingu reiðir af.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sigurlaug Rúnarsdóttir fer yfir möguleika Aftureldingar.

Klippa: Afturelding 8. sæti

HK í 7. sæti: Þynnri hópur en hæfileikarnir til staðar

Hornamaðurinn Tinna Sól Björgvinsdóttir hefur verið viðloðandi landsliðið að undanförnu.vísir/hulda margrét

Eftir gott tímabil 2019-20, þar sem HK lenti í 4. sæti, tók liðið skref aftur á bak í fyrra þrátt fyrir að vera með sterkari leikmannahóp. HK-ingar unnu aðeins fjóra leiki af fjórtán og þurftu að fara í umspil um að halda sér uppi.

Hópurinn hjá HK hefur veikst umtalsvert í sumar en nokkrir leikmenn hafa lagt skóna á hilluna. Þeirra á meðal eru Kristín Guðmundsdóttir og Díana Kristín Sigmarsdóttir. Brotthvarf hinnar síðarnefndu skilur HK eftir án örvhentrar skyttu. Þá er landsliðskonan Sigríður Hauksdóttir meidd og verður frá um óákveðinn tíma. Skarð hennar verður vandfyllt.

HK spilar mjög ákafan varnarleik með síbrotakonuna Elnu Ólöfu Guðjónsdóttur fremsta í flokki en markvarslan hefur ekki verið nógu góð síðustu ár.

HK-ingar eru með nokkra unga og hæfileikaríka leikmenn eins og Jóhönnu Margréti Sigurðardóttur, Þóru Maríu Sigurjónsdóttur og Söru Katrínu Gunnarsdóttur sem var markahæst í Grill 66 deildinni á síðasta tímabili og valinn besti sóknarmaður hennar.

HK verður væntanlega í hörkubaráttu við Hauka um að ná 6. sætinu mikilvæga. Ljóst er að innbyrðis leikir þessara liða munu skipta miklu þegar talið verður upp úr kössunum.

Gengi HK undanfarinn áratug

  • 2020-21: 7. sæti
  • 2019-20: 4. sæti
  • 2018-19: 7. sæti
  • 2017-18: B-deild (2. sæti)
  • 2016-17: B-deild (4. sæti)
  • 2015-16: 9. sæti
  • 2014-15: 9. sæti
  • 2013-14: 8. sæti+átta liða úrslit
  • 2012-13: 5. sæti+átta liða úrslit
  • 2011-12: 5. sæti+sex liða úrslit
Sara Katrín Gunnarsdóttir gæti slegið í gegn í vetur.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 22,5 (6. sæti)
  • Mörk á sig - 25,0 (7. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 26,8% (7. sæti)
  • Skotnýting - 53,1% (5. sæti)
  • Tapaðir boltar - 12,3 (7. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Margrét Ýr Björnsdóttir frá Aftureldingu

Farnar:

  • Kristín Guðmundsdóttir hætt
  • Lovísa Líf Helenudóttir til Aftureldingar
  • Hafdís Shizuka Iura hætt
  • Ólöf Ásta Arnþórsdóttir hætt
  • Heiðrún Berg Sverrisdóttir hætt
  • Díana Kristín Sigmarsdóttir hætt
  • Alexandra Von Gunnarsdóttir hætt

Lykilmaðurinn

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir er í hópi bestu ungu leikmanna Olís-deildarinnar.vísir/bára

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var ein af stjörnum þarsíðasta tímabils og var þriðji markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar þegar hún sleit krossband í febrúar 2020. Hún sneri aftur um mitt síðasta tímabil og skoraði 34 mörk í níu leikjum. Jóhanna verður núna með frá byrjun og verður í risastóru hlutverki í sóknarleik HK.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sólveig Lára Kjærnested fer yfir möguleika HK.

Klippa: HK 7. sæti

Haukar í 6. sæti: Sterkari en í fyrra en hverju skilar það?

Rakel Sigurðardóttir fagnar á meðan Sara Odden hleypur til baka.vísir/hulda margrét

Haukar þóttu ekki líklegir til afreka á síðasta tímabili enda höfðu þeir misst sterka leikmenn. En reynsluboltinn Gunnar Gunnarsson barði í brestina, Haukar enduðu í 6. sæti og komust í úrslitakeppnina.

Færeyski markvörðurinn Annika Fríðheim Petersen reyndist Haukum vel og þá skutust ungir leikmenn á borð við Elínu Klöru Þorkelsdóttur fram á sjónarsviðið og stimpluðu sig inn í Olís-deildina.

Haukar hafa fengið ágætan liðsstyrk í sumar og leikmannahópurinn er sterkari en á síðasta tímabili. Haukar fengu meðal annars Ástu Björt Júlíusdóttur frá ÍBV og líklega er ekkert lið deildarinnar jafn vel sett með örvhentar skyttur með hana og Bertu Rut Harðardóttur. Þá fengu Haukar markvörðinn Margréti Einarsdóttur frá Val og færeysku skyttuna Natösju Hammer. Þess má geta að gamla stórskyttan, Hans Guðmundsson, er afi hennar.

Haukar ættu að komast í úrslitakeppnina en það er erfitt að sjá þá fara mikið ofar en í 5. sætið. En þetta er lið í sókn.

Gengi Hauka undanfarinn áratug

  • 2020-21: 6. sæti+átta liða úrslit
  • 2019-20: 5. sæti
  • 2018-19: 4. sæti+undanúrslit
  • 2017-18: 4. sæti+undanúrslit+bikarúrslit
  • 2016-17: 3. sæti+undanúrslit
  • 2015-16: Deildarmeistari+undanúrslit
  • 2014-15: 5. sæti+átta liða úrslit
  • 2013-14: 7. sæti+átta liða úrslit
  • 2012-13: 8. sæti+átta liða úrslit
  • 2011-12: 8. sæti
Hin sautján ára Elín Klara Þorkelsdóttir er afar lofandi leikmaður.vísir/hulda margrét

HB Statz tölurnar frá síðasta tímabili

  • Mörk skoruð - 23,3 (5. sæti)
  • Mörk á sig - 24,0 (5. sæti)
  • Hlutfallsvarsla - 33,1 (4. sæti)
  • Skotnýting - 52,1% (6. sæti)
  • Tapaðir boltar - 11,6 (6. sæti)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Ásta Björt Júlíusdóttir frá ÍBV
  • Margrét Einarsdóttir frá Val
  • Ólöf Maren Bjarnadóttir frá KA/Þór
  • Gunnhildur Pétursdóttir heim úr námi
  • Anna Lára Davíðsdóttir frá Gróttu
  • Natasja Hammer frá Kyndli

Farnar:

  • Silja Möller til Neistans
  • Ólöf Maren Bjarnadóttir til ÍBV (á láni)

Lykilmaðurinn

Annika Fríðheim Petersen (til vinstri) ásamt löndu sinni, Natöshu Hammer.haukar

Færeysku miðin hafa reynst gjöful fyrir íslensk félög og Annika Fríðheim Petersen átti afar gott tímabil í marki Hauka á síðasta tímabili. Til marks um það voru aðeins þrjú lið voru með betri hlutfallsmarkvörslu en Haukar í fyrra. Annika, sem er landsliðsmarkvörður Færeyja, þarf að halda uppteknum hætti frá því á síðasta tímabili ef Haukar ætla að taka skref fram á við.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Sigurlaug Rúnarsdóttir fer yfir möguleika Hauka.

Klippa: Haukar 6. sæti

Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×