Innlent

Fór í heimildarleysi inn til konu sem sakaði hann um nauðgun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það var að morgni dags í maí 2020 sem karlmaðurinn ók sem leið á frá Akureyri og norður á Siglufjörð.
Það var að morgni dags í maí 2020 sem karlmaðurinn ók sem leið á frá Akureyri og norður á Siglufjörð. Vísir/Egill

Karlmaður um fimmtugt hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hafa farið óboðinn inn á heimili á Siglufirði að morgni dags í maí fyrir rúmu ári.

Á heimilinu bjó kona ásamt kærasta sínum og dóttur. Konan sakaði karlmanninn um að hafa ráðist á hana daginn á undan og reynt að nauðga henni.

Fram kom við aðalmeðferð málsins að kærasti hennar hefði mætt til hans og þeir rætt málið kvöldið áður. Karlmaðurinn hefði ekki talið þá hafa náð að útkljá málið og því gert sér ferð frá Akureyri til Siglufjarðar til að hitta á kærustuparið.

Dóttir þeirra kom til dyra og sagði karlmanninum að bíða á meðan hún athugaði með móður sína. Sú vildi ekkert við hann tala og bað dóttur sína um að segja gestinum að hún væri sofandi. Karlmaðurinn sagðist hafa heyrt á tal og ákveðið að ganga inn. Fór hann úr skónum, og gekk upp á aðra hæð þar sem kærastinn tók á móti honum. Meinaði hann honum för og vísaði veginn út. Sló hann karlmanninn í höfuðið á útleið.

Kærði kærustuparið karlmanninn fyrir húsbrot með því að hafa farið í heimildarleysi inn í húsið.

Héraðsdómur Norðurlands eystra leit til þess að karlmaðurinn hefði brotið freklega gegn friðhelgi einkalífs og heimilis kæranda þegar hann kom þangað að morgni dags. Heimilisfólk hafi verið sofandi.

Þar knúði hann dyra þar til þær voru opnaðar og hélt í heimildarleysi inn í húsið, neitaði að yfirgefa húsið og krafðist þess að tala við konuna sem honum hafi mátt vera ljóst að vildi ekki ræða við hann eins og aðdraganda málsins var háttað.

Þótt skilorðsbundið 30 daga fangelsi hæfileg refsing en maðurinn á ekki sakaferil að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×