Sport

Dagskráin í dag: Stórmót í golfinu og hörkulandsleikir

Valur Páll Eiríksson skrifar
Englendingar verða í eldlínunni í kvöld.
Englendingar verða í eldlínunni í kvöld. EPA-EFE/ANDY RAIN

Tour Championship meistaramótið á PGA-mótaröðinni hefur göngu sína í dag. Þá verða stórleikir á dagskrá í undankeppni HM á rásum Stöðvar 2 Sport.

Golf

Tvö hörkumót hefjast í golfinu í dag. Fyrra mótið dagsins er á Evrópumótaröðinni, Opna ítalska mótið, og hefst keppni klukkan 11:30 á Stöð 2 Golf.

Þá er komið að einu stærsta móti ársins á PGA-mótaröðinni vestanhafs, Tour Championship, sem hefst klukkan 17:00 á Stöð 2 Golf.

Fótbolti

Tveir hörkuleikir fara fram í undankeppni HM karla 2022 í Katar. England sækir Ungverjaland heim og hefst bein útsending klukkan 18:35 á Stöð 2 Sport 2.

Þá fá Svíar lið Spánar í heimsókn til Stokkhólms á sama tíma. Bein útsending frá þeim leik hefst klukkan 18:35 á Stöð 2 Sport 3.

Öll mörk kvöldsins verða svo sýnt á Stöð 2 Sport 2 klukkan 20:45.

Allar beinar útsendingar sem fram undan eru má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×