Viðskipti innlent

Pétur Jakob Pétursson ráðinn til HPP, prótínverksmiðju Héðins

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Pétur Jakob Pétursson.
Pétur Jakob Pétursson. Vísir/Aðsent

Pétur Jakob Pétursson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri hjá HPP, en HPP er háþróuð prótínverksmiðja sem hönnuð var frá grunni og smíðuð hjá Héðni. Með HPP geta sjávarútvegsfyrirtæki fullnýtt aflann hundrað prósent með framleiðslu á lýsi og fiskmjöli, jafnt á landi sem um borð í skipum.

Pétur Jakob er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og Tromsö. Pétur Jakob er með fjölbreytta reynslu úr sjávarútvegi. Hann var sölustjóri hjá Skaganum 3X áður en hann kom til Héðins. Hann starfaði meðal annars sem innkaupastjóri DeutscheSee, sem er stærsti fiskframleiðendandi í Þýskalandi og með stærstu vefverslun með fisk í Evrópusambandinu, með aðsetur í Bremerhaven og sinnti framleiðslu- og gæðastýringu hjá Samherja til margra ára.

Í tilkynningu segir að Héðinn hafi fjárfest rúmum milljarði króna í þróun HPP og að umsvif próteinverksmiðjunnar hafi aukist ár frá ári. 

HPP byggir á nýrri nálgun við vinnslu afurðanna, sem sparar orku, rými, mannafla og skilar jafnari gæðum. HPP er nú að finna um borð í frystitogurum Ramma, Brims og Samherja og dótturfélaga þeirra, og í skipum erlendra útgerða.

Þá kemur fram að smíði sé nú þegar hafin á nýrri 380 tonna HPP verksmiðju fyrir Síldarvinnsluna í Neskaupsstað og að stutt sé síðan Gröntvedt Nutri í Noregi tók 350 tonna HPP í notkun til að fá 100 prósent nýtingu hráefnis við vinnslu á makríl og síld.

„Það er afar spennandi að ganga til liðs við Héðin í þessari vegferð. Fyrirtækið fagnar 100 ára afmæli á næsta ári. Héðinn hefur yfir gríðarlegum mannauði að ráða í verkviti og verkkunnáttu hjá smiðjufólki, tæknifræðingum og verkfræðingum. Sjávarútvegurinn leggur áherslu á að skapa sem mest verðmæti og með HPP geta fyrirtækin náð 100% nýtingu aflans og hámarkað virði hans. Framsækin fyrirtæki í sjávarútvegi hafa áttað sig á þeim auknu verðmætum sem HPP skapar. Það eru ekki margir sem geta státað af því að gera heiminn örlítið grænni en þeir komu að honum, en sú er raunin hvað HPP varðar,“ er haft eftir Pétri Jakobi í tilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×