Fyrstu covid-smitin frá upphafi greindust í Palaú í dag Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. ágúst 2021 15:50 Tvímenningarnir eru þeir fyrstu sem hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni í Palaú frá upphafi. Getty Fyrstu innanlandssmitin greindust í Palaú í gær en frá upphafi faraldursins hefur enginn greinst smitaður af kórónuveirunni í landinu fyrr en nú.
Palaú er lítið eyríki í Kyrrahafi en hinir smituðu voru tveir ferðmenn sem voru að koma frá eyjunni Guam. Þeir og allir þeir sem komu nálægt þeim hafa verið skipaðir í einangrun. Mikil hræðsla greip um sig meðal eyjaskeggja þegar fregnirnar bárust en heilbrigðisráðuneyti landsins tilkynnti það í dag að engar innanlandstakmarkanir verði settar á þrátt fyrir þessa gríðarlegu fjölgun smita. Meira en áttatíu prósent þjóðarinnar, sem nemur þó aðeins átján þúsund manns, er fullbólusett gegn veirunni. Forseti landsins, Surangel Whipps, sagði í dag að eyjan væri „ekki lengur Covid-laus en nú Covid-örugg.“ Þar til í dag var Palaú eitt fjórtán ríkja í heiminum sem tekist hefur að koma alveg í veg fyrir kórónuveirusmit innan sinna landamæra, samkvæmt gögnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Tvö þeirra landa eru þó Norður-Kórea og Túrkmenistan og hefur það verið harðlega dregið í efa að smitleysi ríkjanna standist skoðun.
Palaú Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Sjá meira