Rætt var við Ísleif í hádegisfréttir Bylgjunnar.
„Við ásamt Þjóðhátíðarnefnd og ÍBV ákváðum bara að kýla á dagskrá kvöldsins í fullri stærð. Þannig að það eru allir sem áttu að koma fram í kvöld þeir koma fram og meira að segja búið að bæta aðeins við dagskránna,“ sagði Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu í hádegisfréttum Bylgjunnar.
„Það er allur búnaður sem átti að vera: Ljós, LED skjáir og allar græjur. Þetta er bara „full on show“ í kvöld. Nema að af því að ástandið er svo furðulegt þá er þetta bara gert fyrir myndavélarnar og það er enginn í dalnum og enginn í brekkunni.“
Hálfgert „brjálæði“ en gaman
Er þetta ekki í fyrsta sinn sem brekkusöngur fer fram fyrri tómri brekku?
„Jú þetta er mjög sérstakt og það er sérstakt fyrir okkur að setja þetta upp, vitandi það að það verður enginn þarna í brekkunni. En þetta er líka mjög skemmtilegt og allir voða glaðir að það skyldi kýlt á þetta. En jú þetta er alveg örugglega í fyrsta skipti sem brekkusöngur fer fram fyrir tómri brekku en við ætlum að setja textann yfir skjáinn þannig að fólk geti sungið með heima hjá sér.“

Líkt og fram hefur komið hefur Þjóðhátíð verið frestað. Stefnt er að því að halda hátíðina síðar í sumar. Eyjamenn hafa ekki leynt því að frestun á Þjóðhátíð er gríðarlegur skellur, ekki bara fjárhagslega heldur ekki síður tilfinningalega.
Hátt upp í sextíu manns vinna nú að því að láta dagskránna verða að veruleika.
„Crewið byrjaði að tínast hingað inn fyrir tveimur dögum þannig að þetta er svakalegt umfang og þetta er helvíti stór ákvörðun að ákveða að kýla á þetta í fullri stærð. Hálfgert brjálæði en samt mjög gaman að þetta sé að gerast svona. Mjög áhugavert.“
Sjá einnig: Eyjamenn skemmta sér í hvítum tjöldum úti í garði
Lögregla vaktar svæðið
Líkt og áður segir verða engir áhorfendur í brekkunni, mikil gæsla verður á svæðinu og passar lögregla að enginn komist inn í dalinn.
„Við lokum svæðinu í dag. Við verðum með gæslu og ef einhver reynir að koma þá vísum við þeim frá. Reyndar er ekkert gaman að reyna að sjá þetta því þú hvorki sérð né heyrir. Það eru bara myndatökumenn úti um allt og hljóð fer bara í græjurnar. Þannig ekki reyna að koma. Þið komist ekkert inn og það er ekkert að sjá. Besta leiðin til að njóta þess er bara í tækjunum heima.“

Fjörið byrjar klukkan 21:00
Hægt er að kaupa miða í gegnum myndlykla Vodafone og Símans eða á Tix.is Útsending hefst klukkan hálf níu. Albatross og gestir stíga á svið klukkan níu og svo hefst brekkusöngurinn vinsæli klukkan ellefu.
„Meðal þeirra sem koma fram eru Pálmi Gunnars, Ragga Gísla, Sverrir Bergmann. Sveinn Waage er kynnir og Hreimur er sérstakur gestur. Svo koma líka Guðrún Árný, Jóhanna Guðrún og Klara. Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrir brekkusöng klukkan ellefu.“

Hvorki blys né brenna í brekkunni
Ekki fékkst leyfi til að vera með blys né brennu í kvöld.
„Við ætlum samt að gera ýmislegt til að reyna að skapa þessa þjóðahátíðarstemningu þannig það kemur bara í ljós hvað við gerum.“
Lofið þið góðri skemmtun í kvöld?
„Já við gerum það. Það er verið að leggja gríðarlega mikið í þetta. Eins og ég segi, full dagskrá, full stærð, her af fólki og græjum. Ég held að þetta verði engu líkt. Hvet alla til að horfa og upplifa þetta saman.“