Bíó og sjónvarp

Carri­e Brads­haw og vin­konur sam­einaðar á ný

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Vinkonurnar Miranda, Carrie og Charlotte hafa snúið aftur, aðdáendum til mikillar gleði.
Vinkonurnar Miranda, Carrie og Charlotte hafa snúið aftur, aðdáendum til mikillar gleði. HBO Max

Þessa dagana standa yfir tökur á þáttunum And Just Like That...! sem eru framhald af hinum geysivinsælu þáttum Sex and the City. Sautján ár eru síðan þættirnir hættu í sýningu og ellefu ár eru síðan seinni Sex and the City kvikmyndin kom út og því ríkir mikil eftirvænting eftir nýju þáttunum.

Tilkynnt var í upphafi árs að þær Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kristin Davis myndu snúa aftur sem vinkonurnar Carrie, Miranda og Charlotte. Kim Cattrall sem fór með hlutverk hinnar djörfu Samönthu verður þó fjarri góðu gamni, þar sem mikið ósætti ríkti á milli hennar og Parker.

Þættirnir munu fjalla um líf vinkvennanna í New York-borg sem nú eru komnar á sextugsaldur. Búast má við því að ástarmál, tíska og kokteilar muni spila stór hlutverk líkt og í Sex and the City þáttunum.

Aðdáendur þáttanna og aðrir tískuunnendur út um allan heim hafa beðið í mikilli eftirvæntingu eftir nýju þáttunum, en verða að láta sér þessar myndir duga fram að frumsýningu sem mun fara fram á streymisveitunni HBO MAX. Ekki hefur þó verið gefið út hvenær þættirnir verða frumsýndir, en tökur eru í fullum gangi.

Persónan Carrie Bradshaw er þekkt fyrir mikið tískuvit og skemmtilegan stíl.Getty/Gotham
Persónan Charlotte er einnig þekkt fyrir að vera ávallt smekkleg til fara.Getty/Gotham
Persónan Miranda er gefur vinkonum sínum ekkert eftir í klæðaburði.Getty/James Devaney
Við fáum einnig að kynnast nýjum persónum í þáttunum. Hér má sjá leikkonuna Nicole Ari Parker í hlutverki Lisu Todd Wexley.Getty/Gotham
Gamlir og góðir vinir áhorfenda láta sig ekki vanta. Hér má sjá Mario Cantone sem fer með hlutverk Anthony.Getty/James Devaney
Leikkonan Bridget Moynahan snýr aftur í hlutverki Natöshu Naginsky, fyrrverandi eiginkonu Mr. Big.Getty/Gotham

Sögusvið þáttanna er New York, borgin sem aldrei sefur.Getty/Jose Perez/Bauer-Griffin
Í Sex and the City þáttunum fóru vinkonurnar reglulega í dögurð þar sem þær ræddu málefni líðandi stundar. Svo virðist sem engin breyting verði á því í nýju þáttunum.Getty/Jose Perez/Bauer-Griffin
Tískuunnendur bíða spenntir eftir því að sjá hvaða flíkum tískudrósin Carrie Bradshaw muni klæðast í þáttunum.Getty/mediapunch/bauer-griffin
Tuttugu og þrjú ár eru síðan Sex and the City þættirnir fóru fyrst í loftið. Leikkonurnar eru glaðar yfir endurfundinum eins og sjá má.Getty/James Devaney
Þættirnir verða aðgengilegir á streymisveitunni HBO Max, en ekki hefur enn verið gefið upp hvenær.Getty/Gotham


Tengdar fréttir

Tökur byrjaðar fyrir Beð­mál í borginni

Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kristin Davis eru mættar á tökustað nýrrar seríu Beðmáls í borginni, eða Sex and the City. Þær lásu í gegn um handritið að fyrsta þættinum ásamt samleikurum sínum.

Stað­festa að Sex and the City snúi aftur

Til stendur að framleiða nýja þáttaröð af Sex and the City. Í nýju þáttaröðinni verða tíu hálftíma langir þættir sem framleiddir eru fyrir streymisveituna HBO Max.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×