Innlent

Reyna að losa mann sem festi höndina í vinnu­vél

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Unnið er að því að losa manninn.
Unnið er að því að losa manninn. Vísir/Vilhelm

Viðbragðsaðilar í Árnessýslu eru nú á vettvangi vinnuslyss við landbúnaðarstörf í Grímsnesi. Maður festi hönd í heyvinnuvél og er unnið að því að losa hann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir einnig að frekari upplýsingar verði ekki veittar um málið að svo stöddu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×