Dani sýknaður af ákæru um 34 ára gamalt morð í finnskri ferju Atli Ísleifsson skrifar 30. júní 2021 11:16 Viking Sally í Stokkhólmi á níunda áratugnum. Ferjan var seld árið 1993 til nýs félags og sigldi þá leið Estline milli Stokkhólms og Tallinn. Ferjan sökk í september 1994 þar sem 852 manns fórust. WIKIPEDIA COMMONS/MARK MARKEFELT Dómstóll í Turku í Finnlandi hefur sýknað danskan karlmann af ákæru um morð sem framið var um borð í finnskri ferju árið 1987.
YLE segir frá þessu. Maðurinn var ákærður fyrir morðið á tvítugum þýskum ferðamanni á ferjunni Viking Sally og tilraun til morðs á 22 ára gamalli vinkonu hans. Morðið átti sér stað aðfaranótt 28. júlí 1987, en ferjan var á leið frá Stokkhólmi í Svíþjóð og til Turku í Finnlandi. Ráðist var á kærustuparið Klaus Schelke og Bettina Taxis með hamri þar sem þau sváfu í svefnpokum sínum uppi á dekki ferjunnar. Schelke lést af sárum sínum, en Taxis lifði af en hlaut varanlegan skaða. Eftir að ferjan lagðist að bryggju í Turku beið lögregla og tók skýrslu af öllum farþegum og starfsfólki, en aldrei tókst að hafa hendur í hári morðingjans. Árið 2016 komst lögregla hins vegar yfir nýjar upplýsingar í málinu og fóru grunsemdir þá að beinast að dönskum ríkisborgara sem var um borð í ferjunni þegar ráðist var á fólkið. Hefði maðurinn verið sakfelldur hefði þetta verið lengsti tíminn milli framins glæps og sakfellingar í finnskri réttarsögu.
Finnland Danmörk Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira