Íslenski boltinn

Lof og last 11. um­ferðar: Sæ­var sýndi snilli sína, vonar­stjarna skaut upp kollinum og slakt gengi á heimavelli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sævar Atli [fyrir miðju með fyrirliðabandið] fór fyrir sínum mönnum að venju er liðið lagði Víking.
Sævar Atli [fyrir miðju með fyrirliðabandið] fór fyrir sínum mönnum að venju er liðið lagði Víking. Vísir/Hulda Margrét

Elleftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld samkvæmt vef KSÍ. Það hefur mikið gengið á síðustu tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Sævar Atli sýndi snilli sína

Hvar væru nýliðar Leiknis Reykjavíkur án Sævars Atla Magnússonar?

„Í fallsæti,“ væri stutta svarið en Sævar Atli hefur skorað 8 af 11 mörkum liðsins það sem af er tímabili, þar af bæði mörkin í 2-1 sigri á Víkingum í gærkvöld. Hreint út sagt ótrúlegur árangur hjá fyrirliðanum unga.

Ef fer sem horfir er alls óvíst hvort hann nái að spila í grænni treyju Breiðabliks en eins og frægt er orðið samdi Sævar Atli við Kópavogsliðið þar sem samningur hans við Leikni R. rennur út í haust.

Eins og staðan er í dag þá fer Sævar Atli rakleiðis út í atvinnumennsku og Blikar þurfa að láta sér duga að vera með Thomas Mikkelsen og Árna Vilhjálmsson í fremstu víglínu.

Þá er vert að hrósa Leiknisliðinu í heild sinni en liðið varð í gær fyrsta liðið til að leggja Víking að velli og tókst þar með að enda fjögurra leikja taphrinu.

Eggert Aron Guðmundsson

„Eggert er maðurinn“ söng Silfurskeiðin um nýjustu vonarstjörnu sína er Stjarnan vann 2-1 sigur á KR vestur í bæ er liðin mættust á Meistaravöllum í gær. Eggert Aron Guðmundsson kom inn af varamannabekk gestanna undir lok fyrri hálfleiks og þakkaði pent fyrir sig er hann skoraði það sem reyndist sigurmarkið á 58. mínútu leiksins.

Eggert Aron er ungur að árum – fæddur 2004 – en það aftraði ekki Þorvaldi Örlygssyni, þjálfara Stjörnunnar, er miðvörðurinn Björn Berg Bryde meiddist undir lok fyrri hálfleiks. Með þrjá af fjóra miðvörðum sínum á meiðslalistanum var Eyjólfur Héðinsson færður niður í miðvörð og Eggert Aron kom inn á miðjuna.

Reyndist það frábær ákvörðun en Eggert kom með aukinn kraft í lið gestanna og léttleikandi miðja Stjörnunnar keyrði einfaldlega yfir KR-inga í síðari hálfleik. Eggert Aron hefði hæglega getað bætt við mörkum en hann var hreint út sagt frábær í leiknum.

Ekki er hægt að fjalla um Eggert án þess að nefna nafna hans, Eggert Guðmundsson, en fyrrum þessi fyrrum formaður KSÍ og West Ham United er afi drengsins.

Endurkoma Breiðabliks

Aðeins voru 20 mínútur eftir af leik HK og Breiðabliks í Kórnum er heimamenn komust 2-1 yfir. Allt stefndi í að HK-grýla gestanna myndi enn á ný prýða forsíður blaðanna en á einhvern undraverðan hátt tókst Blikum ekki aðeins að jafna metin heldur að vinna leikinn. 

Geta þeir þakkað mörkum Thomas Mikkelsen á 84. mínútu og Andra Rafns Yeoman þremur mínútum síðar fyrir það. Lokatölur í Kórnum 2-3 gestunum í vil og titilvonir Breiðabliks lifa á meðan HK nær ekki að hrista af sér falldrauginn.

HK Breiðablik Pepsi deild karla vetur 2021 fótbolti KSÍ

Last

Hrun HK

Það er óþarfi að lista upp hvað fór úrskeiðis hjá HK en liðið var 2-1 yfir gegn erkifjendum sínum þegar 83 mínútur voru komnar á klukkuna. Aðeins fjórum mínútum síðar var liðið komið 3-2 undir og sjötta tap liðsins í 10 leikjum staðreynd.

Sökkvandi Skagamenn

ÍA komst 2-0 yfir gegn Keflavík í sannkölluðum sex stiga botnbaráttuslag á Skipaskaga í gær. Með sigri hefðu Skagamenn farið upp í átta stig og þar með upp fyrir HK í töflunni. Þá hefði einnig aðeins munað stigi á ÍA og Keflavík en munurinn er fjögur stig eins og staðan er í dag.

Það er ljóst að Skagamenn horfa til Stjörnunnar en eftir erfiða byrjun eru Garðbæingar allt í einu komnir með 12 stig á töfluna og ekki tapað í síðustu fimm leikjum sínum.

Klúður ársins á Hlíðarenda

Það er eiginlega ekki hægt að sleppa Sverri Pál Hjaltested eftir færið sem hann brenndi af gegn Fylki. Framherjinn ungi hefur átt erfitt með svefn en í stöðunni 1-0 brenndi hann af einu rosalegasta færi síðari ára.

Heimavallarárangur umferðarinnar

Síðast en ekki síst er vert að minnast á að í sex leikjum var aðeins eitt heimalið sem landaði sigri. FH var marki yfir og manni fleiri er KA jafnaði metin í Kaplakrika, hrakfarir HK hafa verið ræddar hér að ofan sem og skelfingin á Skaganum.

Þá komust bæði Valur og KR yfir en hvorugt landaði sigri. Valur gerði 1-1 jafntefli við Fylki og KR tapaði sínum leik gegn Stjörnunni.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: FH - KA 1-1 | Tíu KA menn sóttu stig í Kaplakrika

Óli Jó stýrði liði FH í fyrsta sinn í úrvalsdeildinni í fótbolta síðan 2007 er liðið fékk KA í heimsókn í Kaplakrikann í dag. Lokatölur 1-1, en KA menn jöfnuðu leikinn þegar tæplega stundarfjórðungur var til leiksloka eftir að hafa orðið manni færri nokkrum mínútum áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×