Tónlist

Tónlistarkonan Cell7: Kaflaskipti, nýtt lag og ný plata

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Nýjasta lag Cell7, Its Complicated, kom út á miðnætti á streymisveitum en lagið er fyrsta lag af væntanlegri breiðskífu tónlistarkonunnar.
Nýjasta lag Cell7, Its Complicated, kom út á miðnætti á streymisveitum en lagið er fyrsta lag af væntanlegri breiðskífu tónlistarkonunnar. Juliette Rowland

“Bíddu, ha! Eru liðin tvö ár? Ég sem ætlaði aldrei að vera í pásu,” segir Ragna Kjartansdóttir í samtali við Vísi. Á miðnætti sendi hún frá sér lagið It's Complicated sem er fyrsta lag Cell7 af væntanlegri breiðskífu.

Alltaf að semja og skapa

Ragna hefur þó aldeilis ekki setið auðum höndum síðan hún gaf út síðustu plötu árið 2019. Í millitíðinni hefur hún unnið sem hljóðhönnuður og í öðrum tónlistartengdum verkefnum eins og sjónvarpsþáttaröðunum Broti og Kötlu.

Ragna og tónlistarkonan Hildur stofnuðu einnig hljómsveitina Red Riot fyrr á árinu þar sem Ragna segist hafa svalað þörf sinni fyrir að semja tónlist og skapa.

Það var líka gott að hafa fengið útrás í því að semja saman danstónlist á þessum tíma þar sem að við komumst aldrei út á djammið. Við erum núna búnar að gefa út tvö lög og vinnum að breiðskífu. Í raun mætti segja að nýja Cell7 lagið sé þriðja lagið sem ég gef út síðan 2019.

Mikil orka fór í að vinna í gegnum persónulega erfiðleika og vonbrigði

Síðasta plata Cell7, Is Anybody Listening, kom út árið 2019 og vakti platan gríðarlega mikla athygli bæði hérlendis og erlendis. Platan vann Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta hiphop- og rappplata ársins og var einnig tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna (Nordic Music Prize) sama ár.

Ragna segir það vissulega hafa verið erfitt að hafa ekki getað fylgt plötunni eftir eins og lá fyrir en heimsfaraldurinn setti þar stórt strik í reikninginn.

”Allt 2020 fór í vaskinn hjá mér, það var búið að leggja upp allt árið í tónleikaferðalögum og viðburðum. Það sem stendur upp úr er að ég átti þá að spila erlendis nokkrum sinnum í mánuði það ár en það hefur bara aldrei gerst á mínum tónlistarferli. 

Þannig að þetta var vissulega mjög mikill skellur fyrir mig og mitt crew. Á sama tíma var ég persónulega að ganga í gegnum erfitt tímabil en það tók mikinn tíma og það fór orka í að vinna sig í gegnum öll þessi vonbrigði.

Ragna segir nýju plötuna ekki muni hljóma eins og neitt sem hún hafi gefið út áður. Juliette Rowland

Það sem koma skal er mjög ólíkt fyrri verkum

Hvers er að v ænta af nýju plötunni? Verður hún í svipaðri stemningu og sú síðasta?

“Nýja platan mun ekki hljóma eins og neitt sem ég hef áður gefið út frá mér. Nýjasta lagið mitt er eflaust eitthvað sem mátti svo sem búast við af mér og mínum hljóðheim en það sem koma skal er mjög ólíkt þessu eins og staðan er núna.”

Ég er að vinna í svo skemmtilegum og þroskandi samstörfum og virðast þau draga fram í mér allskonar sem ég þorði ekki áður. Það er fátt skemmtilegra en að vinna með kláru fólki sem maður tengir við. Fólki sem dregur bæði fram það besta og versta í manni.

Semur þú  alla textana þína sjálf?

“Já, þegar kemur að Cell7 þá geri ég það. Red Riot samstarf okkar Hildar er svolítið öðruvísi, þar erum við að semja saman viðlög og kafla en þegar kemur að rappi þá sem ég það nú oftast sjálf.”

Um hvað fjallar nýja lagið Its Complicated?

Það er flókið, eins og titillinn gefur til kynna. Bara hlusta og njóta. Svo dæmir hver fyrir sig.

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið Its Comlicated en lagið er afrakstur samstarfs Rögnu og pródúsersins Young Nazareth (Arnars Inga) – sem meðal annars vakti athygli fyrir aðkomu sína að plötu GDRN.

Aðrir sem komu að útgáfu lagsins eru trommarinn Kristófer Rodriguez, Friðfinnur Oculus sem hljóðblandaði og tónjafnaði lagið og hönnuðurinn Eysteinn Þórðarson sem hannaði útlit smáskífunnar.Eysteinn Þórðarson

Tengdar fréttir

„Við erum að byrja byltingu“

Tónlistin sem við erum að gera er frekar áköf og okkur langaði að finna nafn sem passaði við þetta allt. Red - rauður er litur eldsins, Riot – uppreisn/bylting, er einmitt það sem við erum að gera með þessari tónlist. We are starting a riot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×