Viðskipti innlent

Bandarískt fjárfestingarfélag kaupir 16,6 prósent í Icelandair

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Kaupin ganga ekki í gegn nema að þau verði samþykkt á hluthafafundi Icelandair.
Kaupin ganga ekki í gegn nema að þau verði samþykkt á hluthafafundi Icelandair. vísir/vilhelm

Bandaríska fjárfestingarfélagið Bain Capital hefur gert samkomulag við Icelandair Group um kaup á 16,6 prósent hlut í félaginu. Kaupin hljóma upp á rúma átta milljarða íslenskra króna.

Hlutirnir sem Bain skráir sig fyrir eru samtals rúmlega 5,6 milljarðar nýrra hluta og eru þeir seldir á genginu 1,43 króna á hlut.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að samkomulagið sé gert með fyrirvara um samþykki hluthafafundar og að hluthafar falli frá forgangsrétti sínum að nýjum hlutum í félaginu. Bain Capital mun fá fulltrúa í stjórn Icelandair Group eftir kaupin.

Verði kaupin samþykkt á hluthafafundinum mun Úlfar Steindórsson þá stíga til hliðar sem stjórnarmaður í félaginu. Stefnt er að því að halda hluthafafundinn eftir sléttan mánum, þann 23. júlí.

Mitt Romney er meðal stofnenda Bain Capital.AP

Fjárfestingarfélagið mun að auki fá áskriftarréttindi fyrir hlutum sem samsvara 25 prósentum af heildarfjölda þeirra nýju hluta sem gefnir verða út.

Mitt Romney meðal stofnenda Bain

Bain Capital var stofnað árið 1984 en á meðal stofnenda þess var Mitt Romney, fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins og núverandi öldungardeildarþingmaður. Hann sá eini sem hefur gegnt stöðu forstjóra í sögu fjárfestingarfélagsins.

Hlakka til samstarfsins

„Það er mikið gleðiefni að bjóða Bain Capital velkomin í sterkan og fjölbreyttan hluthafahóp okkar. Við erum ánægð með að fá í hópinn leiðandi fjárfesti á heimsvísu með mikla þekkingu á fluggeiranum. 

Samkomulagið er auk þess mikilvæg viðurkenning á því ötula starfi sem starfsfólk Icelandair hefur unnið til að tryggja bjarta framtíð félagsins. Við hlökkum til samstarfsins og að nýta þau miklu tækifæri sem við sjáum í viðskiptalíkani Icelandair eftir heimsfaraldurinn,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group í tilkynningu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.vísir/egill

Hljóðið er svipað í Matthew Evans, framkvæmdastjóra Bain Capital:

„Við erum mjög spennt fyrir því að bæta Icelandair Group í fjölbreytt eignasafn okkar í flugtengdri starfsemi og að styðja við flugfélagið í næsta kafla 84 ára sögu þess,“ er haft eftir honum.

„Þó líklegt sé að það taki ferðaþjónustu í heiminum nokkurn tíma að ná fullum styrk á ný, deilum við þeirri trú með stjórnendum Icelandair að viðskiptalíkan félagsins sé mjög samkeppnishæft til lengri tíma og að félagið hafi rekstrarsögu sem setur það í kjörstöðu til þess að nýta sér þau tækifæri sem verða til nú þegar heimsfaraldurinn er í rénun. 

Við erum sannfærð um að víðtæk reynsla okkar úr fluggeiranum og virðisaukandi nálgun muni styðja við vöxt Icelandair til hagsbóta fyrir alla hluthafa.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×