Fótbolti

Eyðilagði EM-draum Íslands en fer ekki á mótið

Sindri Sverrisson skrifar
Dominik Szoboszlai á leiðinni að skjóta Ungverjum á EM og um leið koma í veg fyrir að Ísland yrði með á mótinu.
Dominik Szoboszlai á leiðinni að skjóta Ungverjum á EM og um leið koma í veg fyrir að Ísland yrði með á mótinu. EPA/Tibor Illyes

Ungverska ungstirnið Dominik Szoboszlai missir af Evrópumótinu í fótbolta vegna meiðsla í læri sem hafa angrað hann frá því í janúar.

Szoboszlai skaut Ungverjalandi á EM þegar hann skoraði sigurmark í uppbótartíma gegn Íslandi, í Búdapest í nóvember.

Markið hjálpaði Szoboszlai að vekja enn meiri áhuga hjá nokkrum af sterkari félögum Evrópu og hann var seldur til RB Leipzig í Þýskalandi, frá RB Salzburg í Austurríki, í janúar.

Szoboszlai hefur hins vegar ekkert náð að spila fyrir sitt nýja félag, vegna meiðsla. Vonir stóðu til þess að hann myndi jafna sig fyrir EM og hann mætti til æfinga með ungverska hópnum. Eftir svo langa fjarveru frá keppni var hins vegar ákveðið að þessi tvítugi miðjumaður færi ekki á EM.

Ungverjar leika í riðlinum sem Ísland hefði farið í, D-riðil, og eru þar með Portúgal, Frakklandi og Þýskalandi.

Ungverski hópurinn

Markmenn: Ádám Bogdán (Ferencváros), Dénes Dibusz (Ferencváros), Péter Gulácsi (Leipzig).

Varnarmenn: Bendegúz Bolla (Fehérvár), Endre Botka (Ferencváros), Attila Fiola (Fehérvár), Ákos Kecskés (Lugano), Ádám Lang (Omonia Nicosia), Gergő Lovrencsics (Ferencváros), Loïc Négo (Fehérvár), Willi Orbán (Leipzig), Attila Szalai (Fenerbahçe).

Miðjumenn: Tamás Cseri (Mezőkövesd), Dániel Gazdag (Philadelphia Union), László Kleinheisler (Osijek), Ádám Nagy (Bristol City), András Schäfer (Dunajská Streda), Dávid Sigér (Ferencváros), Kevin Varga (Kasımpaşa), Roland Varga (MTK Budapest).

Sóknarmenn: János Hahn (Paks), Filip Holender (Partizan), Nemanja Nikolić (Fehérvár), Roland Sallai (Freiburg), Szabolcs Schön (FC Dallas), Ádám Szalai (Mainz).


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×