Er þetta hármissir eða bara þunnt hár? Harklinikken 3. júní 2021 13:11 Margar konur verða fyrir hárþynningu á ólíkum aldri í lífinu. Harklinikken veitir meðferð við hárlosi og hárþynningu.
Margar konur verða fyrir hárþynningu á ólíkum aldri í lífinu en margar konur telja einnig að þær hafi þunnt hár frá náttúrunnar hendi og að það hafi alltaf verið þannig. Rakel Pálmadóttir, framkvæmdastjóri Harklinikken á Íslandi, segir að á meðan hárþynning sé almennt ágengari hjá karlmönnum, þar sem hún sést oft við gagnaugun og á hvirflinum, sé ferlið mun meira hægfara og ósamfelldara hjá konum. Rakel Pálmadóttir, framkvæmdastjóri Harklinikken á Íslandi. Vörumerkið opnaði fyrsta útibú sitt í Reykjavík að Laugavegi 15 í lok maí, en þar er bæði starfrækt verslun og meðferðarstofa. ,,Vegna hins ósamfellda ferlis við hárþynningu kvenna, þar sem hársekkirnir skreppa smátt og smátt saman með sérhverri nýrri kynslóð af hári, taka konur almennt ekki eftir því að hárið sé farið að þynnast fyrr en mörgum árum eftir að ferlið hefst. Hárþynningarferlið fer yfirleitt af stað með hormónabreytingum sem geta jafnvel hafist á unglingsaldri, þannig að konur sem taka eftir því að hárið sé að þynnast við 35 ára aldur kunna að hafa verið með stöðuga hárþynningu allt frá 15 ára aldri. Þegar konur taka fyrst eftir því að hárið sé farið að þynnast leita þær oft fyrirbyggjandi lausna. En konur sem hafa verið með þunnt hár síðan að þær komust á fullorðinsaldur eru líklegri til að telja að þær hafi alltaf verið með þunnt hár og muni alltaf vera með þunnt hár," segir Rakel en bætir við að þessar konur hafi raunar í flestum tilfellum rangt fyrir sér. ,,Þegar þær sjá myndir af sjálfum sér á unglingsaldri er hárið hugsanlega heilbrigðara og þykkara á myndunum en það er núna. Reyndin er sú að hugsanlega er hárið fíngert frá náttúrunnar hendi, en með tímanum hefur fíngert hárið orðið enn þynnra. Góðu fréttirnar eru þær að jafnvel fíngert hár getur orðið þykkt og mikið með réttu nálguninni að heilbrigði hársins. Það er virkilega til leið til að stöðva hárþynningu." Það sem gerist með tímanum í hársekkjunum Rakel segir að viðskiptavinir Harklinikken nefni oft hvernig þeir hafa alltaf verið með fíngert hár. ,,Þó er raunin oft sú að hárið hefur verið að þynnast svo hægt og svo stöðugt í lengri tíma, að þeir hafa ekki tekið eftir hversu mikið það hefur breyst. Það sem gerist er að hársekkirnir eru smám saman að smækka, sem þýðir að þvermál þeirra dregst saman og þeir verða grynnri og færast þar af leiðandi nær yfirborði hársvarðarins með sérhverri nýrri kynslóð af hári. Áður gat hver hársekkur kannski framleitt 3-4 þykk og heilbrigð stök hár en núna geta þeir hugsanlega aðeins framleitt 1-2 stök hár, sem veldur því að hárið verður þynnra. Um leið og þvermál hársekkjanna dregst saman minnkar þvermál hvers hárs sem þeir framleiða, sem gerir hárið stökkara svo að það slitnar frekar. Minna þvermál hefur í för með sér að hársekkirnir geta ekki haldið nærri jafnmiklum raka né melaníni, sem gerir hárið þurrt og slitið." Margar konur telja einnig að þær hafi þunnt hár frá náttúrunnar hendi og að það hafi alltaf verið þannig. Vandamálið er að hársekkirnir eru að dragast saman Jafnvel þó að fólk telji að það muni hafa þunnt hár ævina á enda mælir Rakel með því að fólk bóki ráðjöf hjá Harklinikken. ,,Sérfræðingar okkar munu leggja mat á hársvörð þinn og skipuleggja meðferð til að endurheimta heilbrigði hársvarðarins og hársins, óháð því hvort hárið sé nýfarið að þynnast eða þér finnist það alltaf hafa verið þunnt. Ein af leiðunum til að sjá hvort hárið sé að þynnast er hvað það losnar í miklu magni. Samkvæmt American Academy of Dermatology er eðlilegt að losa á milli 50 til 100 hár hvern dag. En margir eru einnig með miklu meira hárlos en þetta án nokkurra vandamála." Rakel nefnir að þegar hárþynning sé til staðar kunna konur að losa meira en meðalfjölda hára á dag. Margar ástæður geta verið fyrir þessu, þar með talið vandamál í ónæmiskerfi, viðbrögð við nýjum lyfjum eða notkun á skaðlegum hárvörum. ,,Ef þú ert í vafa um hvort að hárlos þitt sé af eðlilegu magni getur hársérfræðingur aðstoðað þig. Hann leggur mat á ástandið og fyllir þig fljótlega sjálfstrausti varðandi ástand hárs þíns," segir hún. Styrkir hársekkina svo að hárið verður þykkara og fallegra Oft er rætt um þunnt hár og hárþynningu sem gjörólík vandamál, en lausnirnar geta verið þær sömu í mörgum tilvikum. ,,Sama hvort hár þitt sé að þynnast eða þér finnst það alltaf hafa verið þunnt þá er Extractið okkar mjög góð lausn þar sem það styrkir hársekkina svo að hárið verður þykkara og fallegra. Sérfræðingar okkar geta hjálpað fólki að koma á nýjum venjum við umhirðu hársins sem virka með Extractinu. Með þessari meðferð getur fólk hafið vegferð sína í áttina að þykku og heilbrigðu hári, jafnvel þó það hafi ekki trúað því að það væri hægt," segir Rakel ennfremur.
Heilsa Förðun Verslun Mest lesið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Lífið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira