Körfubolti

Dallas óvænt komið í 2-0, Lakers jafnaði og Brooklyn burstaði Boston

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luka Doncic hefur verið geggjaður í fyrstu tveimur leikjunum á móti Los Angeles Clippers sem Dallas Mavericks hefur unnið báða á útivelli.
Luka Doncic hefur verið geggjaður í fyrstu tveimur leikjunum á móti Los Angeles Clippers sem Dallas Mavericks hefur unnið báða á útivelli. AP/Marcio Jose Sanchez

Dallas Mavericks er að byrja úrslitakeppnina í NBA frábærlega og er komið í 2-0 á móti Los Angeles Clippers eftir tvo útisigra í röð.

Luka Doncic var stórkostlegur í nótt þegar Dallas Mavericks vann 127-121 sigur á Los Angeles Clippers en Mavericks liðið er flestum að óvörum búið að vinna tvo fyrstu leikina.

Doncic var með 39 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum en hann fékk líka góðan stuðning frá Tim Hardaway Jr. sem skoraði 28 stig og hitti úr 6 af 8 þriggja stiga skotum sínum. Kristaps Porzingis skoraði 20 stig.

Doncic var með 31 stig og þrennu í fyrsta leiknu og nýtur sín augljóslega á stærsta sviðinu með samanlagt 70 stig, 17 fráköst og 18 stoðsendingar í þessum tveimur athyglisverðu sigrum á útivelli.

Það dugði ekki Clippers liðinu að fá 41 stig frá Kawhi Leonard og 28 stig frá Paul George (12 fráköst, 6 stoðsendingar). Restin af byrjunarliðinu skoraði aðeins 14 stig samtals en Reggie Jackson var næststigahæstur með 15 stig inn af bekknum.

Anthony Davis var frábær þegar Los Angeles Lakers jafnaði einvígið á móti Phoenix Suns með 109-102 sigri.

Davis var í vandræðum í fyrsta leiknum en kom sterkur til baka í nótt þar sem hann var með 34 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar.

Dennis Schroder var með 24 stig og LeBron James bætti við 23 stigum og 9 stoðsendingum. Sigur Lakers var nokkuð sannfærandi en liðið komst meðal annars í 63-48 í byrjun seinni hálfleiks.

Suns liðið gafst þó ekki upp og var komið 88-86 yfir þegar sex mínútur voru eftir. Þeir réðu hins vegar ekki við Davis og James í lokin og Lakers vann mikilvægan sigur.

Devin Booker var atkvæðamestur hjá Phoenix liðinu með 31 stig en hann hitti úr öllum sautján vítum sínum. Deandre Ayton var síðan með 22 stig og 10 fráköst.

Boston Celtics ætlar ekki að vera mikil fyrirstaða fyrir Brooklyn Nets en Nets liðið vann annan leikinn 130-108 og er komið í 2-0 í einvíginu.

Joe Harris minnti á sig og þá staðreynd að Brooklyn Nets liðið er ekki bara þessir stóru þrír. Harris skoraði sjö þriggja stiga körfur og alls 25 stig sem er það mesta sem hann hefur skorað í einum leik í úrslitakeppni á ferlinum.

Kevin Durant var stigahæstur hjá Brooklyn með 26 stig, James Harden skoraði 20 stig og Kyrie Irving var með 15 stig. Allir voru þeir með á bilinu fimm til sjö stoðsendingar, Harden gaf sjö, Kyrie sex og Durant fimm.

Marcus Smart skoraði 19 stig fyrir Boston og Kemba Walker var með 17 stig en Jayson Tatum skoraði bara 9 stig á 21 mínútu áður en hann fékk fingur í augað og spilaði ekki meira.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×